 | Eldri fréttir
- 16. ágúst 2011. Íslandsmeistarar 2011 – Nú liggja fyrir úrslit í Íslandsmeistarakeppni Landssambandsins árið 2011. Keppnin var hörð fram að síðasta móti. Íslandsmeistarar í sjóstangaveiði urðu Eygló Óttarsdóttir Sjósigl og Einar Þ. Pálsson Sjóak, Eygló í fyrsta sinn og Einar í annað sinn. Stjórn Sjól óskar þeim innilegar hamingju með árangurinn. Hlutu þau í verðlaun veglega farand- og eignargripi ásamt gjafabréfum frá styrktaraðilum. Helstu verðlaunahafar aðrir voru Sigtryggur Þrastarson Sjóve sem veiddi stærsta fisk sumarsins sem vó 21kg og 350 gr. Kristinn Grétarsson Sjór, veiddi flestar tegundir eða 12 samtals. Fimm ný landsmet voru sett. Einar Þ. Pálsson Sjóak var aflahæsti veiðimaður sumarsins. Þau ásamt öðrum verðalaunahöfum hlutu gjafir og gjafabréf með vöruútektum hjá eftirtöldum fyrirtækjum: 66° Norður, Olís/Ellingsen og Vesturröst. Stjórn Sjól þakkar þessum velunnurum okkar innilega fyrir veittan stuðning. Nánari upplýsingar um stöðuna að loknu veiðisumri má sjá undir liðnum Íslandsmeistari hér að ofan. Stefán B.
- 16. ágúst 2011 – Sjóak 2011 Aðalmót Sjóak fór fram 12. og 13. ágúst. Mótið fór fram frá Dalvík að venju. Veður var gott og var þátttaka í mótinu góð, 75 keppendur, 58 karlar og 17 konur. 20 bátar fluttu veiðimenn út á miðin. Veiðin var betri en hún hefur verið á flestum mótum fram að þessu. Aflahæsti karl mótsins var Einar Þ. Pálsson frá Sjóak og aflahæsta kona Sigríður Rögnvaldsdóttir frá Sjósigl. 8 tegundir veiddust á mótinu. Stærsta fisk mótsins veiddi Svala Júlía Ólafsdóttir Sjósigl rúmlega 19 kg þorsk. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 8. ágúst 2011 – Sjóskip 2011 Aðalsmót Sjóskip var haldið sl. helgi og gekk vel. Þátttakendur voru 31 á 11 bátum. Heildarveiði var frekar dræm. Það veiddust þó hvorki meira né minna 12 tegundir og þar af var Guðjón H. Hlöðversson Sjór með 11. Sett voru 2 ný landsmet með 960 gramma makríl sem Eygló Óttarsdóttir Sjósigl veiddi og 362 gramma skrápflúru sem Gilbert Ó Guðjónsson Sjór veiddi. Aflahæstu einstaklingar voru Einar Þ. Pálsson frá Sjóak og Eygló Óttarsdóttir frá Sjósigl. Stefán B.
- 29. júlí 2011 – Sjól 2011 Nú eru tvö mót eftir á þessu sumri, Sjóskip 5–6 ágúst og Sjóak 12–13 ágúst. Keppni til Íslandsmeistara er enn galopin og hörð þannig að mikið getur gerst á þessu síðustu mótum. Fjögur ný landsmet hafa nú þegar verið sett í ár og hver veit nema þau verði enn fleiri. Hvatt er til góðrar mætingar á síðustu mótin. Stefán B.
- 28. júlí 2011 – Sjósigl 2011 Aðalsmót Sjósigl var haldið 22–23 júlí og tókst vel. Þátttakendur voru 46 á 12 bátum. Heildarveiði var góð. Það veiddust alls 9 tegundir. Sigtryggur Þrastarson Sjóve landaði rúmlega 21 kg þorski sem er stærsti fiskur sumarsins fram að þessu. Aflahæstu einstaklingar voru Pétur Sigurðsson frá Sjóak og Svala Júlía Ólafsdóttir frá Sjósigl. Stefán B.
- 28. júlí 2011 – Sjósnæ 2011 Aðalsmót Sjósnæ var haldið 15–16 júlí og heppnaðist mjög vel. Þátttakendur voru 50 á 13 bátum. Heildarveiði var sæmileg. Það veiddust alls 12 tegundir og þar á meðal var rauðmagi en hann hefur ekki veiðst á móti í meir en áratug. Rauðmaginn vó rúmlega 1,1 kg og er um nýtt landsmet að ræða, veiðimaður var Kristinn Grétarsson Sjór. Aflahæstu einstaklingar voru Pétur Þór Lárusson frá Sjóskip og Eygló Óttarsdóttir frá Sjósigl. Stefán B.
- 7. júlí 2011 – Sjóskip 2011 Aðalsmót Sjóskip verður haldið helgina 5–6 ágúst frá Akranesi. Mótinu var frestað um miðjan júní sl. vegna þess að ekki tókst að fá báta fyrir alla keppendur. Stefán B.
- 7. júlí 2011 – Sjóís 2011 Aðalsmót Sjóís var haldið um 1–2 júlí og tókst vel. Þátttakendur voru frekar fáir eða 18 á 6 bátum. Heildarveiði var þokkaleg. Það veiddust alls 7 tegundir Engin lúða veiddist á þessu móti. Aflahæstu einstaklingar voru Baldvin S. Baldvinsson frá Sjóak og Eygló Óttarsdóttir frá Sjósigl. Stefán B.
- 23. júní 2011 – Sjóskip 2011 Til stóð að halda aðalmót sjóskip frá Akranesi helgina 24–25 júní. Var undirbúningi nær lokið þegar mótsaðilar misstu hvern bátinn á fætur öðrum úr keppninni. Niðurstaða Sjóskip var að fresta mótinu og voru keppendur látnir vita. Ekki liggur fyrir ákvörðun hvenær mótið verður haldið. Stefán B.
- 13. júní 2011 – Sjóve 2011 Aðalsmót Sjóve var haldið um hvítasunnuhelgina 11–12 júní og og tókst ágætlega. Þátttakendur voru 45 á 12 bátum. Veður var þolanlegt en heildarveiði í dræmara lagi. Það veiddust alls 12 tegundir og þar af var einn aðili, Stefán Guðjónsson Sjór, með 10 tegundir. Kristinn Grétarsson Sjór veiddi glæsilega 12,65 kg lúðu og hefur nú veiðst lúða á öllum þrem aðalmótum sumarsins fram að þessu. Baldvin S. Baldvinsson frá Sjóak veiddi 2,050 kg lýsu sem er nýtt landsmet. Aflahæstu einstaklingar voru Róbert Gils Róbertsson frá Sjóak og Sigríður Rögnvaldsdóttir frá Sjósigl. Stefán B.
- 9. júní 2011 – Sjónes 2011 Aðalmót Sjónes var haldið helgina 3–4 júní og og tókst ágætlega. Þátttakendur voru 21 á 7 bátum. Veður var gott en veiði frekar dræm. Það veiddust 7 tegundir og þar af ein ný sem ekki hefur verið skráð áður en það er tindabikkja sem Þiðrík Hrannar Unason Sjósigl veiddi(sjá http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=1558). Óskar Bjarni Birgisson Sjóve veiddi nærri 5 kg lúðu. Aflahæstu einstaklingar voru Tómas Gunnarsson frá Sjóak og Eygló Óttarsdóttir frá Sjósigl. Stefán B.
- 31. maí 2011 – Sjór 2011 Aðal- og 50 ára afmælismót Sjór var haldið um síðustu helgi og og tókst mjög vel og á Sjór hrós skilið. Þátttakendur voru 73 á 22 bátum og var veiði mjög góð og veður þokkalegt. Það veiddust 8 tegundir og þar af ein ný sem ekki hefur verið skráð áður en það er skrápflúra (sjá http://is.wikipedia.org/wiki/Skr%C3%A1pfl%C3%BAra). Þorgerður Einarsdóttir Sjór krækti í tæplega 5 kg lúðu. Aflahæstu einstaklingar voru Einar Þ. Pálsson frá Sjóak og Guðrún Jóhannesdóttir frá Sjóak. Stefán B.
- 22. maí 2011 – Sjóskip 2011 Góðar fréttir eru að berast frá Akranesi. Þar er verið að mynda nýja stjórn Sjóskip og bendir allt til að aðalmót félagsins verði haldið 24.-25. júní eins og áætlað var. Stefán B.
- 18. maí 2011 – Sjór 2011 Veðurguðir setja strik í reikninginn varðandi móthaldið. Vegna mjög slæmrar spár fyrir komandi helgi, kulda og hvassviðri, ákvað stjórn Sjór að fresta aðalmóti Sjór um eina viku og verður það haldið 27.-28. maí á Patreksfirði. Formenn aðildarfélaga Sjól veita félögum sínum nánari upplýsingar. Stefán B.
- 2. maí 2011 – Sjóstangaveiðimót 2011 Innanfélagsmót helgarinnar heppnuðust vel. Veiði var að vísu dræm í Vestmannaeyjum en þar veiddust 9 tegundir og þar á meðal nærri 2 kg Lýr. Veiðin var mun betri á innanfélagsmóti Sjór á Grundarfirði og þar veiddust stórir þorskar og var sá stærsti rétt rúm 20 kg. Þettar lofar góðu fyrir aðalmót sumarsins en það fyrsta er afmælismót Sjór sem haldið verður frá Patreksfirði 20 – 21 maí nk. Stefán B.
- 29. apríl 2011 – Sjóstangaveiðimót 2011 Þá er sjóstangaveiðitímabilið okkar að hefjast og verða fyrstu innanfélagsmótin laugardaginn 30. apríl. Það eru innanfélagsmót Sjóve með um 12 keppendur og innanfélagsmót Sjór, en á þessu afmælisári félagsins ætla 57 Sjór félagar að keppa. Vel lítur út með veður. Fyrsta aðalmótið verður síðan 50 ára afmælismót Sjór sem haldið verður frá Patreksfirði 20 – 21 maí nk. Reikna má með góðri þátttöku þar. Stefán B.
- 26. febrúar 2011 – Aðalfundur SJÓL 2011 verður haldinn laugardaginn 5. mars nk kl 10–14 á Grand hótel í Reykjavík. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.Stefán B.
- 26. febrúar 2011. Nýtt veiðisumar 2011 – Ágætu sjóstangaveiðimenn og konur. Þá er kominn tími til að heimasíða Sjól vakni úr vetrardvalanum. Vonandi hafa veiðimenn nýtt veturinn til að undirbúa veiðisumarið, hnýtt flugur, þrifið og smurt veiðihjól, skipt um línur , lagað stangir o.fl Ef ekki þá er kominn tími til þess. Eins og kemur fram hér að neðan hafa veiðidagar verið ákveðnir bæði í aðalmótum og innanfélagsmótum og er hægt að skoða það undir liðnum "sjóstangaveiðimót 2011" hér að ofan. Stefán B
- 20. febrúar 2011. Formannafundur 2010 – Formannafundur Landssambandsins var haldinn 27. nóvember sl. í Reykjavík. Þar voru rædd öll helstu mál sem uppi eru varðandi sjóstangaveiðiíþróttina. Samþykktar voru tillögur að dögum fyrir bæði aðalmót og innanfélagsmót félagana á komandi sumri. Samþykkt var að aðalfundur landssambandsins verði í Reykjavík 5. mars nk. Farið var yfir reiknikerfi SJÓL og þær endur bætur sem gerðar hafa verið. Að venju voru veiðireglu SJÓL mikið ræddar og má búast við einhverjum breytingartillögum á aðalfundinum. Einkum er félögunum huglægt að reyna að auka þátttöku kvenna í mótunum. Þeim sem vilja kynnar sér málefni fundarins betur er bent á fundargerð fundarins sem er vistuð undir liðnum "formannfundir" hér að ofan. Stefán B.
- 23. ágúst 2010. Íslandsmeistarar 2010 – Nú liggja fyrir úrslit í Íslandsmeistarakeppni SJÓL árið 2010. Íslandsmeistarar í sjóstangaveiði urðu Svala Júlía Ólafsdóttir SJÓSIGL og Einar Þ. Pálsson SJÓAK, bæði í fyrsta sinn. Stjórn Sjól óskar þeim innilegar hamingju með árangurinn. Hlutu þau í verðlaun veglega farand- og eignargripi ásamt gjafabréfum frá styrktaraðilum. Helstu verðlaunahafar aðrir voru Róbert Gils Róbertsson SJÓAK sem veiddi stærsta fisk sumarsins sem vó 20kg og 940 gr sem var 20 gr þyngra en sá næst stærsti og 120 gr þyngri en sá þriðji stærsti. Keppnin var því geysi hörð. Svala Júlía Ólafsdóttir SJÓSIGL, veiddi flestar tegundir eða 12 samtals og Guðbjartur Gissurarson SJÓR var aflahæsti veiðimaður sumarsins. Þau ásamt öðrum verðalaunahöfum hlutu gjafir og gjafabréf með vöruútektum hjá eftirtöldum fyrirtækjum: Svilar.is, 66° Norður, Cintamani, Ellingsen og Vesturröst. Stjórn Sjól þakkar þessum velunnurum okkar innilega fyrir veittan stuðning. Stefán B.
- 25. ágúst 2010 – SJÓAK 2010 Aðalmót SJÓAK fór fram 20. og 21. ágúst. Mót Akureyringa fór fram frá Dalvík að venju. Keppendur voru 79, 64 karlar og 15 konur. Þátttaka í mótinu var góð og flutti 21 bátur veiðimenn út á miðin. Hérna var veiðin dræm pr stöng líkt og hún hefur verið á flestum mótum fram að þessu. Aflahæsti karl mótsins var Sverrir S. Ólason SJÓSIGL og aflahæsta kona Kristín Þorgeirsdóttir einnig frá SJÓSIGL. 11 tegundir veiddust á mótinu. Stærsta fisk mótsins veiddi Jóhann R. Kjartansson SJÓAK rúmlega 17 kg þorsk. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 25. ágúst 2010 – SJÓSIGL 2010 Aðalmót SJÓSIGL fór fram helgina 23. og 24. júlí. Keppendur voru 41, 33 karlar og 8 konur. 13 bátar fluttu veiðimenn út á miðin. Hérna var veiðin mun betri en hún hefur verið í sumar. Aflahæsti karl mótsins var Guðmundur Svavarsson frá SJÓR og aflahæsta kona Svala Júlía Ólafsdóttir frá SJÓSIGL. 8 tegundir veiddust á mótinu. Stærsta fisk mótsins veiddi Guðbjartur G. Gissurarson SJÓR rúmlega 20 kg þorsk. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 20. júlí 2010 – SJÓSNÆ 2010 Aðalmót SJÓSNÆ fór fram 16. og 17. júlí. Mótið fór fram í þokkalegu afmælisveðri frá Ólafsvík. Keppendur voru 67, 59 karlar og 8 konur. Sautján bátar fluttu veiðimenn út á miðin og var veiðin þolanleg. Aflahæsti karl mótsins var Baldvin S. Baldvinsson frá SJÓAK og aflahæsta kona Svala Júlía Ólafsdóttir frá SJÓSIGL. 10 tegundir veiddust á mótinu. Stærsta fisk mótsins veiddi Matthías Sveinsson SJÓNES 17 kg þorsk upp á gramm. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 8. júlí 2010 – SJÓSNÆ 2010 Aðalmót SJÓSNÆ fer fram frá Ólafsvík 16. og 17. júlí. Þetta er jafnfram 20 ára afmælismót félagsins, en félagið var stofna í júlí árið 1990. Að því tilefni verður lagt sérstaklega mikið í mótið og munu keppendur njóta góðs af því. Ekki sakar að minnast á að Breiðafjarðamiðin hafa löngum verið þekkt fyrir góða og fjölbreytta veiði. Munið að hafa samband við ykkar formann til að tilkynna þátttöku. Stefán B.
- 8. júlí 2010 – SJÓÍS 2010 Aðalmót SJÓÍS fór fram 2. og 3. júlí. Mótið fór fram frá Bolungarvík að venju. Keppendur voru 19, 14 karlar og 5 konur. Sex bátar fluttu veiðimenn út á miðin. Hérna var veiðin frekar dræm eins og hún hefur verið á flestum mótum fram að þessu. Aflahæsti karl mótsins var Einar Þ. Pálsson SJÓAK og aflahæsta kona Guðrún Jóhannesdóttir einnig úr SJÓAK. 11 tegundir veiddust á mótinu. Stærsta fisk mótsins veiddi Einar Þ. Pálsson SJÓAK rúmlega 11 kg þorsk. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 27. júní 2010 – SJÓSKIP 2010 Aðalmót SJÓSKIP fór fram 25. og 26. júní. Mótið fór fram frá Grindavík að þessu sinni, í ágætu veðri. Keppendur voru 24, 20 karlar og 4 konur. Sex bátar fluttu veiðimenn út á miðin. Veiði var mjög dræm en fiskar stórir og má geta þess að af 100 stærstu fiskum sumarsins í fjórum fyrstu mótunum veiddust 55 í þessu móti. Sett voru þrjú ný landsmet, Guðrún Jóhannesdóttir SJÓAK veiddi ufsa sem vó 14,040 kg, Guðjón Hlöðversson SJÓR veiddi sandkola sem vó 1000 gr og Sigríður Rögnvaldsdóttir veiddi keilu sem vó 13,410 kg en sú keila var einungis 10 gr þyngri en sú næst stærsta, þannig að keppnin var mjög hörð. Aflahæsti karl mótsins var Þiðrik Hrannar Unason SJÓSIGL og aflahæsta kona Sigríður Rögnvaldsdóttir einnig úr SJÓSIGL. Stærsta fisk mótsins veiddi Róbert Gils Róbertsson SJÓAK 20,940 kg þorsk sem er jafnframt stærsti fiskur sumarsins fram að þessu. Næst stærsta fisk mótsins veiddi Magnús Guðmundsson SJÓSNÆ, þorsk sem var einungis 120 gr léttari. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 19. júní 2010 – SJÓSKIP 2010 Mót SJÓSKIP verður haldið frá Grindavík dagana 25. og 26. júní. Hafið samband við formann ykkar félags til að tilkynna þátttöku. Stefán B.
- 16. júní 2010 – SJÓSKIP 2010 Nú stefnir allt í að mótið verði haldið frá Grindavík dagana 25. og 26. júní. Nánari fréttir næstu daga. Stefán B.
- 10. júní 2010 – SJÓSKIP 2010 Enn er unnið að því að halda aðalmót SJÓSKIP samkvæmt áætlun þ.e. dagana 18–19 júní. Mögulegt er að mótið verði haldið frá Grindavík. Nánari fréttir næstu daga. Stefán B.
- 10. júní 2010 – SJÓNES 2010 Aðalmót SJÓNES fór fram helgina 4–5 júní 2010. Keppendur voru 32 talsins og veiddu þeir á 10 bátum. Aflahæsti karl var Einar Þ. Pálsson úr SJÓAK og aflahæsta kona Svala Júlía Ólafsdóttir frá SJÓSIGL. Hér veiddust 8 tegundir samtals. Stærsta fisk mótsins veiddi Guðmundur I Grétarsson SJÓNES, þorsk sem vó rétt rúm 10 kg. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum "mótin" hér að ofan. Stefán B.
- 24. maí 2010 – SJÓVE 2010 Aðalmót SJÓVE fór fram um hvítasunnuna 22. og 23. maí. Mótið fór fram frá Vestmannaeyjum í mjög góðu veðri. Keppendur voru 32, 31 karl en einungis 1 kona. Átta bátar fluttu veiðimenn út á miðin. Veiði var frekar dræm en tegundir margar að venju eða tíu talsins. Aflahæsti karl var Hólmar V. Gunnarsson úr SJÓAK og aflahæsta kona Svala Júlía Ólafsdóttir úr SJÓSIGL. Stærsta fisk mótsins veiddi Þorsteinn Einarsson SJÓR 17,4 kg þorsk en næst stærsti fiskur mótsins veiddi Ólafur Bjarnason SJÓSIGL en það var 15,9 kg Langa sem er einungis um 1,3 kg léttari en landsmetslanga Guðmundar Kristinssonar frá 2006. Einnig veiddist óvenjustór lýsa sem vó 1800 gr sem er 160 gr léttari landsmetslýsa Péturs Arnarssonar frá 1992. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 22. maí 2010 – Stigaútreikningur Ýmsir urðu undrandi á að þeir aðilar sem unnu mót SJÓR skulu ekki jafnframt hafa fengið flest íslandsmeistarastig út úr mótinu. Skýringin liggur í að stigin til íslandsmeistara eru reiknuð sjálfstætt fyrir hvorn dag fyrir sig. Ef einhver keppandi hefur gott forskot eftir fyrri daginn getur það nægt honum til að vinna viðkomandi mót þó honum gangi ver og lendi ekki framarlega í röðinni seinni daginn. En varðandi stig til íslandsmeistara þá fær hann flest stig fyrri daginn en mun færri seinni daginn og þarf því ekki að verða hæstur að stigum samanlagt.
- 20. maí 2010 – SJÓR 2010 Fyrsta aðalmót í Íslandsmeistarakeppni SJÓL 2010 fór fram 14. og 15. maí. Mótið var á vegum SJÓR og fór fram frá Patreksfirði. 50 keppendur, 5 konur og 45 karlar, tóku þátt í mótinu á 15 bátum. Veður var sæmilegt fyrri daginn og þokkaleg veiði en slæmt seinni daginn og lítil veiði. Eru þetta nokkur viðbrigði eftir eindæma góð mót undanfarin tvö ár. Aflahæsti karl mótsins var Baldvin Baldvinsson úr SJÓAK og aflahæsta kona Guðrún Jóhannesdóttir úr SJÓAK. Sjö tegundir veiddust samtals í mótinu, þorskur, ýsa, ufsi, steinbítur, marhnútur, koli og síli. Nýtt landsmet var sett en það var koli (sandkoli)sem vó 940 grömm en hann veiddi Jón Þór Guðmundsson SJÓR. Eldra met frá 2006 átti Pétur Sigurðsson SJÓAK en sá koli vó 800 gr. Stærsta fisk mótsins veiddi Guðjón H. Hlöðversson úr SJÓR 18,6 kg þorsk. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 7. mars 2010 – Aðalfundur SJÓL 2010 Aðalfundur Landsambands Sjóstangaveiðifélaga var haldinn laugardaginn 6. mars kl 10 – 16 á 19. hæð í Turninum í Kópavogi. Þar fóru fram venjubundin aðalfundarstörf. Ekkert formannskjör fór fram í ár þar sem formaður er kjörinn annað hvert ár. Ritari og gjaldkeri eru kjörnir árlega og var Páll Pálsson Sjóve endurkjörinn ritari. Guðmundur Kristinsson gaf ekki kost á sér áfram sem gjaldkeri og var Guðbjartur Gissurarson Sjór kjörinn í hans stað. Nokkrar tillögur komu fram um breytingar á veiðireglum landssambandsins og þær helstu sem samþykktar voru fjölluðu m.a. um að ekki er lengur nauðsynlegt að halda sérstaka fund með trúnaðarmönnum fyrir mót (sbr 6 gr) heldur verði lögð áhersla á að félögin tilnefni reynt fólk og mótshaldarar hafi allar upplýsingar tiltækar fyrir trúnaðarmenn. Sjöundu grein c lið reglnanna var breytt þannig að þegar dregið er rafrænt á bátana kemur fram um leið hvernig menn raðast á borðstokk. Þetta kemur því fram í mótsgögnum og ekki verður lengur dregið úr hatti eftir að allir eru komnir um borð. Níundu grein sem fjallar um aðstoð um borð var breytt þannig að nú er betur skilgreint hvernig aðstoða má veiðimenn. Greinin hljóðar nú svona ?Skipsverji eða annar keppandi má ganga frá afla og skera beitu. Einnig háfa, færa í, innbyrða og losa fiska af önglum þeirra keppenda sem í vandræðum lenda, greiða úr flækjum sem á færin eða hjólin kunna að koma, en annars ber keppanda einum að meðhöndla stöngina og veiðarfærin. Trúnaðarmaður skal sjá til þess að allir veiðimenn hafi sem jafnastan aðgang að aðstoð um borð.? Nokkuð var rætt um fjármál félagana og ójafnt gengi þeirra í mótum sumarsins, sum mót ganga glimrandi vel og félög blómstra meðan að önnur berjast í bökkum. Menn voru sammála að finna yrði leiðir til að jafna þetta en voru ekki sammála um leiðirnar. Formaður mun skipa nefnd sem komi með hugmyndir fyrir næsta aðalfund. Nokkuð snarpar umræður urðu á fundinum en allir skildu sáttir og stefnt er að góðu veiðisumri með stórum fiskum og mörgum tegundum þar sem veiðimenn verða duglegir að heimsækja hver aðra og félögin taka vel á móti gestum. Fundargerð aðalfundarins verur birt hér á síðunni um leið og hún liggur fyrir.
- 3. mars 2010 – Aðalfundur SJÓL 2010 verður haldinn laugardaginn 6. mars nk kl 10–14 í Turninum í Kópavogi. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.
- 3. mars 2010. Nýtt veiðisumar 2010 – Ágætu sjóstangaveiðimenn og konur. Þá er kominn tími til að heimasíða Sjól vakni úr vetrardvalanum. Vonandi hafa veiðimenn nýtt veturinn til að undirbúa veiðisumarið, hnýtt flugur, þrifið og smurt veiðihjól, skipt um línur , lagað stangir o.fl Eins og kemur fram hér að ofan hafa veiðidagar verið ákveðnir bæði í aðalmótum og innanfélagsmótum. Reikna má þó með að tímasetning innanfélagsmóta geti breyst t.d. vegna veðurs. Stefán B
Eldri fréttir frá 2009
- 23. ágúst 2009. Íslandsmeistarar 2009 – Nú liggja fyrir úrslit í Íslandsmeistarakeppni SJÓL árið 2009. Íslandsmeistarar í sjóstangaveiði urðu Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir Sjóak og Baldvin S. Baldvinsson Sjóak, Sigfríð í tólfta sinn og Baldvin í fyrsta. Stjórn Sjól óskar þeim innilegar hamingju með árangurinn. Hlutu þau í verðlaun veglega farand- og eignargripi ásamt gjafabréfum frá styrktaraðilum. Helstu verðlaunahafar aðrir voru Bjarni Aðalsteinsson Sjónes sem veiddi stærsta fisk sumarsins, rúmlega 24 kg þorsk, Heimir Sverrisson Sjósigl, sem veiddi flestar tegundir eða 10 samtals og Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir Sjóak sem var aflahæsti veiðimaður sumarsins. Þau ásamt öðrum verðalaunahöfum hlutu gjafabréf með vöruútektum hjá eftirtöldum fyrirtækjum: Sjóstöngin.is, 66° Norður, Cintamani, Ellingsen og Vesturröst. Stjórn Sjól þakkar þessum velunnurum okkar innilega fyrir veittan stuðning. Stefán B.
- 23. ágúst 2009 – Sjósigl 2009 Aðalmót Sjósigl fór fram helgina 21–22 ágúst en þetta var 20 ára afmælismót félagsins. Keppendur voru 50 talsins og veiddu þeir á 14 bátum og var þetta lokamót sumarsins. Aflahæsti karl var Baldvin S. Baldvinsson úr Sjóak en aflahæsta kona Svala Júlía Ólafsdóttir úr Sjósigl. Stærsta fisk mótsins veiddi Jón Einarsson Sjósnæ, þorsk sem vó tæp 20 kg. Það veiddust samtals 8 tegundir og þar af ný tegund, Marhnýtill, sem ekki hefur veiðst á mótum Sjól áður. Veiðimaður var Hallgrímur Skarphéðinsson úr Sjósigl. Marhnýtillinn vó 10 gr. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 18. ágúst 2009 – Sjóak 2009 Aðalmót Sjóak fór fram helgina 14–15 ágúst. Keppendur voru 86 talsins og veiddu þeir á 22 bátum og var þetta stærsta mót sumarsins. Aflahæsti karl var margfaldur íslandsmeistari Árni Halldórsson úr Sjóak en aflahæsta kona var 17 ára nýliði Anna Sif Guðmundsdóttir einnig úr Sjóak. Stærsta fisk mótsins veiddi Baldvin S. Baldvinsson Sjóak, þorsk sem vó rúm 16 kg. Mótið var frekar tegundaríkt og veiddust samtals 10 tegundir. Mikil spenna er um Íslandsmeistaratitlana og þá sérstaklega hjá körlunum þar sem nú munar einungis einu stigi fyrir lokamótið á Siglufirði. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 28. júlí 2009 – Sjósigl 2009 Aðalmóti Sjósigl sem átti að fara fram helgina 24.-25. júlí hefur verið frestað fram til 21.-22. ágúst. Ástæðan var mjög slæm veðurspá fyrir mótsdagana. Sjósigl verður því lokamót sumarsins og verðlaunaafhending Landsambandsins varðandi Íslandsmeistara 2009 mun því fara fram þar. Stefán B.
- 28. júlí 2009 – Sjósnæ 2009 Aðalmót Sjósnæ fór fram helgina 17–18 júlí. Keppendur voru 59 talsins og veiddu þeir á 14 bátum. Aflahæsti karl var Róbert Gils Róbertsson úr Sjóak og aflahæsta kona Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir einnig úr Sjóak. Enn eykst spenningurinn um Íslandsmeistaratitlana og þá sérstaklega hjá körlunum. Stærsta fisk mótsins veiddi Kristín Þorgeirsdóttir Sjósigl, þorsk sem vó rúm 16 kg. Mótið var tegundaríkt að vanda og veiddust nú samtals 14 tegundir og þar á meðal trönusíli, skötuselur og makríll. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 14. júlí 2009 – Sjóís 2009 Aðalmót Sjóís fór fram helgina 3–4 júlí. Keppendur voru 36 talsins og veiddu þeir á 11 bátum. Aflahæsti karl var Baldvin Baldvinsson úr Sjóak og aflahæsta kona Guðrún Jóhannesdóttir einnig úr Sjóak. Keppnin til Íslandsmeistara bæði karla og kvenna er orðin mjög spennandi og er greinilegt að nýtt stigakerfi hefur hleypt aukinni spennu í keppnina. Stærsta fisk mótsins veiddi Gunnar Magnússon Sjósigl, þorsk sem vó rétt tæp 16 kg. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 24. júní 2009 – Sjóskip 2009 Aðalmót Sjóskip fór fram um síðustu helgi og þar með er keppnin til Íslandsmeistara hálfnuð. Keppendur voru 38 talsins og veiddu þeir á 12 bátum. Aflahæsti karl var Heimir Sverrisson úr Sjósigl og aflahæsta kona Svala Júlía Ólafsdóttir einnig úr Sjósigl. Hér veiddust 10 tegundir samtals. Nýtt landsmet var sett á mótinu. Róbert Gils Róbertsson Sjóak veiddi stærsta steinbít sem veiðst hefur á mótum landsambandsins, 10,910 Kg. Stærsta fisk mótsins veiddi Karl Þórðarson Sjóskip, þorsk sem vó rétt rúm 15 kg. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 9. júní 2009 – Sjónes 2009 Aðalmót Sjónes fór fram helgina 5–7 júní 2009 og var það 20 ára afmælismót félagsins. Fyrsta mót Sjónes var haldið 16. júní 1989. Landssambandið sendir Sjónesingum bestu afmæliskveðjur. Keppendur nú voru 45 talsins og veiddu þeir á 14 bátum. Aflahæsti karl var Baldvin S. Baldvinsson úr Sjóak og aflahæsta kona Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir einnig úr Sjóak. Hér veiddust 6 tegundir samtals og þar á meðal fyrsta lúða sumarsins sem Gunnar Magnússon Sjósigl veiddi. Stærsta fisk mótsins sem jafnframt er stærsti fiskur sumarsins fram að þessu veiddi Bjarni Aðalsteinsson Sjónes, þorsk sem vó rétt rúm 24 kg. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 3. júní 2009 – Sjóve 2009 Aðalmót Sjóve fór fram um hvítasunnuna 30. og 31. maí 2009. Mótið fór fram frá Vestmannaeyjum í góðu veðri. Veiði var frekar dræm, gjörólíkt því sem gerðist á Patreksfirði. 32 keppendur tóku þátt á 9 bátum. Aflahæsti karl var Rúnar H. Andrason úr Sjóak og aflahæsta kona Anna S. Jóhannesdóttir einnig úr Sjóak. Hér veiddust 9 tegundir samtals. Stærsta fisk mótsins veiddi Gunnar Þór Friðriksson Sjóve rúmlega 12 kg þorsk. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 3. júní 2009 – Sjór 2009 Fyrsta aðalmót í Íslandsmeistarakeppni SJÓL fór fram 22. og 23. maí 2009. Mótið var á vegum SJÓR og fór fram frá Patreksfirði. 54 keppendur tóku þátt á 13 bátum. Veður var með ágætum og veiði mikil. Hafa menn aldrei kynnst eins mikilli veiði í móti á vegum SJÓL en má búast við að þetta sé einsdæmi. Aflahæsti karl var Jón Einarsson úr Sjósnæ og aflahæsta kona Svala Júlía Ólafsdóttir úr Sjósigl. Einungis 5 tegundir veiddust samtals í mótinu, þorskur, ufsi, steinbítur, marhnútur og koli. Stærsta fisk mótsins veiddi Kristján Vídalín Jónsson rúmlega 8 kg þorsk. Skoða má ítarlegri niðurstöður undir liðnum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 3. júní 2009 – Innanfélagsmót 2009 Í maímánuði fóru fram 5 innanfélagsmót. Fyrsta mótið fór fram frá Neskaupstað laugardaginn 2. maí. Róið var á 3 bátum. Veiði var mjög dræm og veiddust aðeins 2 tegundir, þorskur og ýsa. Annað innanfélagsmótið fór fram frá Ólafsvík 3. maí. Þar var mun betri veiði og náðust 4 tegundir. Róið var á 6 bátum og þátttakendur voru 15. Þriðja innanfélagsmótið fór fram frá Reykjavík laugardaginn 9. maí. Þar veiddist lítið en 8 tegundir náðust. Róið var á 9 bátum með 32 þátttakendum. Elín Snorradóttir náði í 16 kg þorsk og Jón Þór Guðmundsson í 8 kg steinbít. Fjórða innanfélagsmótið fór fram frá Vestmannaeyjum daginn eftir eða 10. maí. Þar var álíka lítil veiði og í Reykjavík en 7 tegundir náðust. Róið var á 5 bátum með 16 keppendum. Stærsti fiskurinn var tæplega 10 kg keila sem Gunnar Þór Friðriksson veiddi. Fimmta innanfélagsmótið fór fram frá Akranesi laugardaginn 16. maí. Þar var veiði frekar lítil en 7 tegundir náðust. Róið var á 4 bátum með 14 keppendur. Stærsti fiskurinn var tæplega 15 kg þorskur sem Guðbjarni Jóhannsson veiddi. Þrjú innanfélagsmót eru eftir og fara þau fram síðar í sumar. Stefán B.
- 27. apríl 2009 – Aðalfundur SJÓL 2009 Laugardaginn 21. mars var haldinn aðalfundur Landsambandsins. Þar voru mættir fulltrúar allra aðildarfélaga. Fyrir lágu venjubundinn aðalfundarstörf samkvæmt lögum landssambandsins. Formaður flutti skýrslu stjórnar og gekk rekstur landssambandsins vel. Reikningar ársins voru lagðir voru fram og er fjárhagsstaðan ágæt. Formaður til næstu tveggja ára var kjörinn Stefán B. Sigurðsson. Til eins ár voru kjörnir Guðmundur Kristinsson gjaldkeri og Páll Pálsson ritari. Gylfi Sigurðsson hætti sem ritari og eru honum þökkuð ritarastörf undanfarin tvö ár. Endurskoðandi var kjörinn Magnús Guðmundsson. Ákveðið var að árgjöld aðildarfélaga til Sjól verði óbreytt. Engar lagabreytingar voru gerðar. Fram komu nokkrar tillögur frá Sjóak og Sjósigl um breytingar á veiðireglum og voru vel flestar þeirra samþykktar. Helstu breytingarnar eru: 9. grein þar sem dregið er úr þeirri aðstoð sem skipshöfn má veita veiðimönnum við venjubundin veiðistörf. Þeir mega þó áfram aðstoða þegar stærri vandamál koma upp s.s. við flækjur, við að innbyrða stórfisk o.fl. 11. grein þar sem veiðigrunnur Sjól verður notaður við útdrátt á báta á aðalmótum. Þetta ætti að eyða allri umræðu um hlutdrægni í niðurröðun veiðimanna á báta og gerir kleyft að bíða með útdrátt þar til rétt fyrir setningu móts þegar allir báta eiga að vera klárir. Einnig var samþykkt heimild að félög geti dregið á báta fyrir hvorn dag fyrir sig. 17. grein þar sem ákveðið var að mótsstig verði reiknuð út fyrir hvorn dag fyrir sig, 75 stig fyrir sigurvegara hvors dags. Inn kom ný grein (19. grein) þar sem segir að aðildafélög skuli nota samræmdan tékklista um framkvæmd móta sem Sjól leggur fram í samvinnu viðaðildarfélögin. Mjög góður og jákvæður andi ríkti á fundinum og voru menn bjartsýnir um skemmtilegt, spennandi og gott veiðisumar.Breyttar veiðireglur verða settar hér inn á heimasíðuna ásamt skýrslu formanns. Stefán B.
- 26. apríl 2009. Nýtt veiðisumar 2009 – Ágætu sjóstangaveiðimenn. Þá er kominn tími til að heimasíða Sjól vakni úr vetrardvalanum. Vonandi hafa veiðimenn nýtt veturinn til að undirbúa veiðisumarið, hnýtt flugur, þrifið og smurt veiðihjól, skipt um línur , lagað stangir o.fl Eins og kemur fram hér að ofan hafa veiðidagar verið ákveðnir bæði í aðalmótum og innanfélagsmótum. Reikna má þó með að tímasetning innanfélagsmóta geti breyst t.d. vegna veðurs. Stefán B
- 24 ágúst 2008. Íslandsmeistarar 2008 – Nú liggja fyrir úrslit í Íslandsmeistarakeppni SJÓL árið 2008. Íslandsmeistarar í sjóstangaveiði urðu Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir Sjóak og Jón Einarsson Sjósnæ, Sigfríð í ellefta sinn og Jón í fyrsta. Stjórn Sjól óskar þeim innilegar hamingju með árangurinn. Hlutu þau í verðlaun veglega farand- og eignargripi ásamt gjafabréfum frá styrktaraðilum. Helstu verðlaunahafar aðrir voru Friðrik J. Hjartar Sjósnæ sem veiddi stærsta fisk sumarsins, Jóhann Ragnar Kjartansson Sjóak, sem veiddi flestar tegundir og Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir Sjóak sem var aflahæsti veiðimaður sumarsins. Þau ásamt öðrum verðalaunahöfum hlutu gjafabréf með vöruútektum hjá eftirtöldum fyrirtækjum: Rafbjörg/Sjóveiði.is, Sjóstöngin.is, 66° Norður, Cintamani, Ellingsen og Vesturröst. Stjórn Sjól þakkar þessum velunnurum okkar innilega fyrir veittan stuðning. Stefán B.
- 19. ágúst 2008 – Íslandsmeistara 2008 Um síðustu helgi urðu Sigfríð Valdimarsdóttir Sjóak og Jón Einarsson Sjósnæ Íslandsmeistarar í sjóstangaveiði, Sigfríð í ellefta sinn og Jón í fyrsta. Sjól færir þeim innilegar hamingjuóskir með árangurinn. Nánari upplýsingar um stig og önnur úrslit má finna hér á síðunni undir flipanum Íslandsmeistari.
- 19. ágúst 2008 – Sjóak 2008 Aðalmóti Sjóak sem var jafnframt síðasta mót sumarsins fór fram um síðustu helgi. 83 keppendur tóku þátt í mótinu á 21 bát. Ágætt veður og ágæt veiði var báða dagana. Að venju var mótið vel skipulagt og flest til fyrirmyndar. Aflahæstu einstaklingar mótsins urðu Árni Halldórsson Sjóak og Björg Guðlaugsdóttir Sjósnæ, en hún vann einnig mótið 2007. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó slétt 17 kíló, veiddi Kristbjörn Rafnsson Sjósnæ. Flestar tegundir eða 7 talsins veiddi Hólmar V. Gunnarsson Sjóak. Úrslit þessa móts og fyrri móta sumarsins er hægt að skoða undir flipanum mótin hérna efst á síðunni. Stefán B.
- 9. ágúst 2008 – Sjóak 2008 Aðalmót Sjóak fer fram frá Dalvík, föstudaginn 15. og laugardaginn 16. ágúst. Það stefnir í að þetta verði stærsta mót sumarsins með yfir 80 þátttakendur. Mikil spenna er um efstu þrjú sæti karla og kvenna til Íslandsmeistara og margt getur breyst í mótinu. Langtímaspáin er með suðlægar áttir fyrir mótshelgina og veiðst hefur ágætlega fyrir norðan að undanförnu. Stefán B.
- 7. ágúst 2008 – Sjósigl 2008 Aðalmót Sjósigl fór fram á Siglufirði 1.-2. ágúst. 60 keppendur tóku þátt. Aflahæsti karl var Árni Halldórsson frá Sjóak. Aflahæsta kona var Una Kristín Árnadóttir frá Sjósigl. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó 24,5 kg veiddi Pétur Sigurðsson frá Sjóak. Tíu tegundir veiddust alls í mótinu. Tegundamaður mótsins var Smári Jónsson frá Sjór með 6 tegundir. Keppnin um 3 efstu sæti til íslandsmeistara er mjög opin og koma 10 veiðimenn enn til greina í karlaflokki og 5 í kvennaflokki. Frekari upplýsingar um úrslitin fást með því að smella á "Mótin" hér að ofan. Stefán B.
- 28. júlí 2008 – Sjósigl 2008 Aðalmót Sjósigl fer fram á Siglufirði nú um verslunarmannahelgina, föstudaginn 1. og laugardaginn 2. ágúst. 60 keppendur eru skráður í mótið. Mikil blíðuspá er fyrir helgina og veiðst hefur ágætlega fyrir norðurlandinu að undanförnu. Stefán B.
- 22. júlí 2008 – Sjósnæ 2008 Aðalmót Sjósnæ fór fram í Ólafsvík 18.-19. júlí. 49 keppendur mættu til leiks. Aflahæsta kona mótsins var Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir frá Sjóak og var hún jafnframt aflahæsti einstaklingurinn. Aflahæsti karl var Rúnar H. Andrason frá Sjóak og ekki munaði nema 140 grömmum á honum og Jóni Einarssyni frá Sjósnæ sem varð í öðru sæti. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó 16,0 kg veiddi Guðrún Jóhannesdóttir frá Sjóak. Tólf tegundir veiddust alls í mótinu. Tegundamaður mótsins var Albert Guðmundsson Sjósnæ með 8 tegundir. Nú er keppnin um Íslandsmeistara að verða virkilega spennandi og þá sérstaklega í karlaflokki. Frekari upplýsingar um úrslitin fást með því að smella á "Mótin" hér að ofan. Stefán B.
- 16. júlí 2008 – Sjóís 2008 Aðalmót Sjóís fór fram 4.-5. júlí. 30 keppendur voru í mótinu í ágætu veðri. Aflahæsti karl var Guðmundur Svavarsson frá Sjó. Aflahæsta kona var Guðrún Jóhannesdóttir frá Sjóak. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó 24,78 kg veiddi Friðrík J. Hjartar frá Sjósnæ, en þetta er stærsti fiskur sumarsins fram að þessu. Tíu tegundir alls veiddust í mótinu og þar á meðal makríll sem hefur ekki veiðst á mótum Sjóís áður. Tegundamaður mótsins var Guðmundur Ólafsson Sjó með 5 tegundir. Frekari upplýsingar um úrslitin fást með því að smella á "Mótin" hér að ofan. Stefán B.
- 16. júlí 2008 – Sjóís 2008 Nokkur bið hefur orðið á því að niðurstöður frá móti Sjóís birtust hér á heimasíðu Sjól. Ástæðan er að vikt bilaði á fiskmarkaðnum fyrri daginn og þurfti því að nota brúttóvikt keppenda fyrir þann dag. Einnig komu upp efasemdir varðandi viktartölur nokkurra keppenda seinni daginn. Nokkurn tíma hefur tekið að fara í gegnum öll gögn mótsins og koma þeim málum í höfn. Stefán B.
- 11. júlí 2008 – Sjósnæ 2008 Aðalmót Sjósnæ fer fram í Ólafsvík föstudaginn 18. júlí og laugardaginn 19. júlí. Á Breiðafirði og þar í kringu eru ein bestu fiskimið landsins. Skráðu þig hjá formanni þíns félags. Stefán B.
- 23. júní 2008 – Sjóís 2008 Aðalmót Sjóís verður haldið á Bolungarvík föstudaginn 4. júlí og laugardaginn 5. júlí. Samkvæmt fréttum eru Vestfirðirnir paradís sjóstangaveiðimanna og því spennandi mót framundan. Skráðu þig í síðasta lagi föstudaginn 27. júní hjá formanni þíns félags. Stefán B.
- 16. júní 2008 – Sjóskip 2008 Aðalmót Sjóskip fór fram 13–14 júní. Smá bræla var fyrri daginn en mun skárra þann seinni en veiðin frekar treg. Aflahæst karl var Jón Einarsson frá Sjósnæ og ekki munaði nema 200 grömmum á honum og næsta manni sem var Gilbert Ó Guðjónsson frá Sjór. Aflahæsta kona var Sigfrið Ósk Valdimarsdóttir frá Sjóak. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó 14,97 kg veiddi Birgir Þór Kjartansson frá Sjónes. Ellefu tegundir alls veiddust í mótinu og þar á meðal 2 kg skötuselur sem er mjög sjaldgæft. Tegundamaður mótsins var Jón Sævar Sigurðsson Sjósigl með 8 tegundir. Frekari upplýsingar um úrslitin fást með því að smella á "Mótin" hér að ofan. Stefán B.
- 2. júní 2008 – Sjónes 2008 Aðalmót Sjónes fór fram um síðustu helgi. Gott veður og ágæt veiði. Aflahæst karl varð Sigfinnur Jónsson frá Sjónes og aflahæsta kona Sigfrið Ósk Valdimarsdóttir frá Sjóak. Stærsta fisk mótsins, þorskur sem vó 10,2 kg veiddi Þiðrik Hrannar Unason frá Sjósigl. Einungis fjórar tegundir veiddust í mótinu, þorskur, ufsi, ýsa og steinbítur. Frekari upplýsingar um úrslitin fást með því að smella á "Mótin" hér að ofan. Stefán B.
- 1. júní 2008 – Sjóskip 2008 Aðalmót Sjóskip fer fram helgina 13. og 14. júní. Sjóskipsmenn hafa sent út auglýsingu til allra Sjól félaga, en þar gerðust þau mistök að mótið er dagsett í maí en á að sjálfsögðu að vera júní. Skráning fer fram hjá formanni hvers félags og eru menn hvattir að skrá sig sem fyrst en skráningu lýkur nú föstudaginn 6. júní. Stefán B.
- 27. maí 2008 – Sjónes 2008 Um næstu helgi þ.e. föstudaginn 30. maí og laugardaginn 31. maí fer fram sjómannadagsmót Sjónes á Neskaupstað. Skráðir eru yfir 30 keppendur. Veðurspáin er góð, suðvestan gola og sól. Stefán B.
- 25. maí 2008 – Sjór 2008 Aðalmót Sjór var haldið um helgina. Fyrri daginn var vel hvasst og töluverður veltingur, en einmuna blíða og sól seinni daginn. Sjórinn iðaði af lífi og veiddist vel. Aflahæst karl varð Einar Kristinsson frá Sjór og aflahæsta kona Sigfrið Ósk Valdimarsdóttir frá Sjóak. Hún veiddi einnig stærsta fisk mótsins sem var þorskur sem vó 21,7 kg. Sex tegundir veiddust í mótinu, þorskur, ufsi, ýsa, steinbítur, marhnútur og koli. Frekari upplýsingar um úrslitin er hægt að sjá með því að smella á "Mótin" hér að ofan. Stefán B.
- 20. maí 2008 – Sjór 2008 Aðalmót Sjór fer fram um næstu helgi þ.e. föstudaginn 23. og laugardaginn 24. maí. Skráningu á að vera lokið og áætlað að þátttakendur verði nálægt 50. Langtímaspáin er góð og heyrst hefur að mikið líf sé í sjónum vestur af landinu og að það geti verið von á góðri veiði. Það er því ekki seinna vænna að fara yfir hjól og línur og búa til nýja slóða. Ef rétt er munað þá veiddist 13 kg lúðan í Vestmannaeyjum um daginn á bleik/gráan RB-öngul og einnig stóra lúðan á Patró fyrir tveimur árum. Stefán B.
- 13. maí 2008 – Sjóve 2008 Hvítasunnumót Sjóve fór fram um helgina. Þar eð illa leit út með veðurspá fyrir seinni daginn var veitt í 10 tíma fyrri daginn í ágætis veðri einkum síðdegis. Þetta reyndist heilladrjúgt þar eð hvítfyssandi sjór blasti við mönnum þegar mætt var að morgni seinni dags og hann því blásinn af. Mótið gekk að öðru leyti mjög vel og veiddist ágætlega. Aflahæsta kona var Svala Júlía Ólafsdóttir Sjósigl og aflahæsti karl Stefán B. Sigurðsson Sjóak. Flestar tegundir eða 9 veiddi Jón Sævar Sigurðsson Sjósigl. Siglfirðingar veiddu stærstu fiska í 6 tegundum og Vestmannaeyjingar í 3. Nánari upplýsingar má fá með því að smella á "Mótin" hér fyrir ofan. Stefán B.
- 7. maí 2008 – Innanfélagsmót SJÓR OG SJÓSKIP 2008 Laugardaginn 3. maí fóru fram innanfélgasmót SJÓR frá Grundarfirði og SJÓSKIP frá Akranesi. Hjá SJÓR voru 30 þátttakendur á 7 bátum og veiddist vel, stórir fiskar, næstum eingöngu þorskur en einnig smávegis af steinbít, ufsa, karfa og síld. Hjá SJÓSKIP voru 11 þátttakendur á 4 bátum og mun minni veiði en meiri fjölbreytni, þorskur, ýsa, ufsi, karfi, steinbítur og langa. Stefán B.
- 28. apríl 2008 – Sjóve 2008 Hvítasunnumót Sjóve fer fram um aðra helgi þ.e. laugardaginn 10. og sunnudaginn 11. maí. Skráning fer fram hjá formanni hvers félags og eru menn hvattir að skrá sig sem fyrst en skráningu lýkur nú á föstudaginn 2. maí. Nánari upplýsingar hér. Stefán B.
- 19. apríl 2008 Aðalfundur Sjól var haldinn 8. mars síðastliðin. Á fundinum voru samþykktar nokkrar breytingar á veiðireglum Sjól og hafa veiðireglurnar verið uppfærðar hér á síðunni. Helstu breytingar snúa að skilgreiningu keppenda, veiðandi skipstjórum, sveitakeppni, stigakeppni og útreikningi bátsafla. Talsverð umræða varð um fyrirkomulag og framkvæmd Íslandsmeistarakeppninnar bæði hvað varðar verðlaun og staðsetningu lokahófs. Fundargerð fundarins verður væntanlega birt hér á síðunni fljótlega. Pétur Sig
- 10. febrúar 2008 – Slóðin Metfiskar Sjól 1991 – 2007 hefur verið hér á síðunni um nokkurt skeið án þess að bak við hana væri nokkur listi. Því hefur nú verið kippt í liðinn. Þórir Sveinsson Sjóís hefur skráð og haldið til haga öllum upplýsingum um metfiska Sjól frá stofnun þess árið 1991 og er listi sá sem hér er birtur unninn upp úr gögnum Þóris. Listinn er birtur hér til kynningar og verður skráður sem opinber metaskrá Sjól á aðalfundi 2009 ef ekki koma athugasemdir við hann fyrir þann tíma. Pétur Sig
- 2. janúar 2008 – Aðalfundur sjóstangaveiðifélagsins Skipaskaga á Akranesi var haldinn 27. des 2007. Þar var kosin ný stjórn en hana skipa: Pétur þór Lárusson, Jón þór Þorgeirsson, Sigurður Jónsson, Guðbjarni Jóhannsson og Hjalti Kristófersson. Jafnframt var opnuð ný heimsíða (www.123.is/sjoskip) en þar verður hægt að nálgast upplýsingar um það sem er að gerast innan félagsins, einnig verða settar inn myndir og annar fróðleikur til upplýsingar og skemmtunar. Umsjónamaður síðunnar er Pétur Þór Lárusson á akranes@visir.is. Stefán B.
- 17 september 2007. Íslandsmeistarar 2007 – Með Sjóak mótinu lauk Íslandsmeistarakeppni SJÓL árið 2007. Íslandsmeistarar urðu Sigfríð Valdimarsdóttir Sjóak og Þorsteinn Jóhannesson Sjósigl. Hlutu þau í verðlaun veglega farand og eignargripi ásamt gjafabréfum frá styrktaraðilum. Gjafabréfin voru flugmiðar frá Icelandair að upphæð kr 80 þús, 30 þús kr ferðaávísun frá Smyril Line og flotvesti frá Rafbjörg/Sjóveiði.is. Helstu verðlaunahafar aðrir voru Guðrún Halldrsdóttir Sjóak sem veiddi stærsta fisk sumarsins, Ólafur Hauksson Sjóve sem veiddi flestar tegundir og Þorsteinn Jóhannesson sem var aflahæsti veiðimaður sumarsins. Þau ásamt öðrum verðalaunahöfum hlutu gjafabréf með vöruútektum hjá eftirtöldum fyrirtækjum: 66° Norður, Digital-Task ehf., Rafbjörg/Sjóveiði.is, Olís ? Ellingsen og Vesturröst. Gjafabréf þessi voru fjármögnuð af þessum fyrirtækjum ásamt Samskipum, Iceland Seafood, Saltkaupum og aðildarfélögum Sjól. Stjórn Sjól þakkar þessum velunnurum okkar innilega fyrir veittan stuðning. Við viljum þakka sérstaklega formönnum Sjóak og Sjór fyrir þeirra aðstoð við útvegun þessara verðalauna. Stefán B.
- 20. ágúst 2007 – Sjóak 2007 Aðalmóti Sjóak sem var síðasta mót sumarsins er lokið. 83 keppendur tóku þátt í mótinu á 23 bátum. Ágætt veður var báða dagana og ekki hægt að kvarta undan veiðinni. Að venju var mótið vel skipulagt og flest til fyrirmyndar. Aflahæstu einstaklingar mótsins urðu Þorsteinn Jóhannesson Sjósigl og Björg Guðlaugsdóttir Sjósnæ. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó rúm 21 kíló, veiddi Guðrún Halldórsdóttir Sjóak. Flestar tegundir eða 8 talsins veiddi Sigríður Rögnvaldsdóttir Sjósigl. Úrslit þessa móts og fyrri móta sumarsins er hægt að skoða undir flipanum mótin hérna efst á síðunni. Stefán B.
- 19. ágúst 2007 – Sjóak 2007 Það einstæða atvik gerðist á móti Sjóak að óhapp varð við hífingu á kari með afla eins keppanda. Karið rakst í og losnaði þannig að hluti aflans fór í sjóinn milli skips og bryggju. Talið var að ekkert væri við þessu að gera og keppandinn yrði að sitja uppi með skaðann. En Sjóakmenn eru hugmyndaríkir og fengu Erlend Bogason kafara sem náði í allan þann fisk sem í sjóinn fór, samtals 76 kíló, þannig að allur afli þessa keppanda skilaði sér á vikt. Frábært!. Stefán B.
- 13. ágúst 2007 – Verðlaunaafhending SJÓL 2007. Öll aðildafélög Landsambands sjóstangaveiðifélaga (SJÓL) leggja fram ákveðna grunnupphæð til styrktar verðlaunafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2007. Þar að auki hafa neðangreind fyrirtæki ákveðið að styrkja verðlaunahafa SJÓL árið 2007. Stuðningur þessara fyrirtækja er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk og eru þeim færðar sérstakar þakkir fyrir. Þess ber og að geta að það var einkum fyrir tilstuðlan formanna Sjóak og Sjór að samningar náðust við þessi fyrirtæki, en þau eru:
- Digital – Task ehf.
- Icelandair
- Iceland Seafood
- Olís – Ellingsen
- Saltkaup
- Rafbjörg/Sjóveiði.is
- Samskip
- 66° Norður
- Smyril line
- Vesturröst
- 12. ágúst 2007 – Sjóak 2007 Aðalmót Sjóak fer fram frá Dalvík föstudaginn 17. og laugardaginn 18. ágúst. Þátttakendur stefna í að verða vel yfir 80 þannig að þetta verður stærsta mót sumarsins. Það er spáð norðanátt í vikunni en það á að bresta á með blíðu og spennandi veiði yfir mótsdagana. Stefán B.
- 5. ágúst 2007 – Sjósigl 2007 Aðalmót Sjósigl lauk í gær og tóku 58 keppendur þátt í mótinu. Mótið einkenndist af góðri veiði þrátt fyrir óvenju erfitt veður báða dagana. Aflahæstu einstaklingar mótsins urðu Árni Halldórsson Sjóak og Soffía Jónsdóttir Sjóak, en þess má geta að þau eru hjón. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó rúm 14 kíló, veiddi Magnús Ingólfsson Sjóak. Flestar tegundir eða 5 talsins veiddi Ragnar Hannesson Sjósigl. Nú er aðeins eitt mót eftir þar til nýjir Íslandsmeistarar verða krýndir og er keppnin bæði jöfn og spennandi. Úrslit þessa móts og fyrri móta er hægt að skoða undir flipanum mótin hérna efst á síðunni. Einnig er hægt að skoða stöðuna hvað varðar verðandi meistara undir flipanum Íslandsmeistari. Stefán B.
- 1. ágúst 2007 – Sjósigl 2007 Aðalmót Sjósigl fer fram á Siglufirði föstudaginn 3. og laugardaginn 4. ágúst. Dugmiklir Siglfirðingar stefna að glæsilegu móti eins og venjulega. Þátttakendur eru um 60 þannig að þetta verður stærsta mót sumarsins fram að þessu. Stefán B.
- 22. júlí 2007 – Sjósnæ 2007 Vel heppnuðu móti Sjósnæ lauk í gær og tók 51 keppandi þátt í mótinu. Aflahæstu einstaklingar mótsins urðu Pétur Sigurðsson Sjóak og Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir Sjóak. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó tæp 19 kíló, veiddi Þiðrik Hrannar Unason Sjósigl. Þetta er jafnframt stærsti fiskur sumarsins fram til þessa. Sigurbjörg Kristjánsdóttir Sjósnæ veiddi fyrsta makríl sumarsins og vó hann 700 grömm. Úrslit þessa móts og fyrri móta er hægt að skoða undir flipanum mótin hérna efst á síðunni. Stefán B.
- 20. júlí 2007 – Sjósnæ 2007 Nokkuð hvasst og blautt var á keppendum þennan fyrri dag mótsins en allir komu brosandi að landi. Veiði frekar dræm en veðurstofan lofar betri dag á morgun. Skoðið niðurstöður fyrri dags undir flipanum mótin hér að ofan. Stefán B.
- 18. júlí 2007 – Sjósnæ 2007 Aðalmót Sjósnæ fer fram á Ólafsvík föstudaginn 20. júlí og laugardaginn 21. júlí. Breiðafjörðurinn er frægt veiðisvæði og upplagt að slá núgildandi stórfiskamet. Um 50 þátttakendur eru skráðir í mótið. Stefán B.
- 11. júlí 2007 – Sjóís 2007 Mótið heppnaðist með ágætum og voru 28 þátttakendur. Aflahæstu einstaklingar mótsins urðu Guðrún Jóhannesdóttir Sjóak og Einar Kristinsson Sjór. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó rúm 16 kíló, veiddi Árni Halldórsson Sjóak. Þetta er jafnframt stærsti fiskur sumarsins fram til þessa. Úrslit þessa móts og fyrri móta er hægt að skoða undir flipanum mótin hérna efst á síðunni.Stefán B.
- 26. júní 2007 – Sjóís 2007 Aðalmót Sjóís fer fram á Bolungarvík föstudaginn 6. júlí og laugardaginn 7. júlí. Þarna er tækifæri að ná í stórlúður miðað við veiðisögur sem berast af Vestfjörðunum. Skráningu lýkur föstudaginn 29. júní hjá formanni þínum. Stefán B.
- 16. júní 2007 – Sjóskip 2007 Frekar treg veiði og erfitt sjólag á mótinu. Heildarveiði rétt rúm 6 tonn. Aflahæstu einstaklingar mótsins urðu Páll Pálsson Sjóve og Hildur Eðvarðsdóttir Sjóskip. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó tæp 11 kíló, veiddi Jóhannes Hreggviðsson Sjóskip. Arnþór Sigurðsson Sjóve veiddi stærstu ýsu sumarsins fram að þessu 3.4 kg. Ólafur Jakobsson Sjóak veiddi fyrstu síld sumarsins og Ólafur Hauksson Sjóve fyrsta hrognkelsið. Úrslit þessa móts og fyrri móta er hægt að skoða undir flipanum mótin hérna efst á síðunni.Stefán B.
- 15. júní 2007 – Sjóskip 2007 Bæði sjólag og veiði hefðu geta verið betri þennan fyrri dag mótsins, Tæp 3,5 tonn veiddust. Stefán B.
- 9. júní 2007 – Sjóskip 2007 Aðalmót Sjóskip fer fram á Akranesi næsta föstudag og laugardag , skráningu er að ljúka og verða keppendur um 40. Stefán B.
- 3. júní 2007 – Sjónes 2007 Sjónes 2007 lauk í gærkveldi, veðrið var gott báða dagana og aflabrögð með ágætum. Aflahæstu einstaklingar mótsins urðu Þorsteinn Jóhannesson Sjósigl og Soffía Jónsdóttir Sjóak. Stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó tæp 10 kíló, veiddi Hjálmar Heimisson Sjónes. Stefán B.
- 1. júní 2007 – Sjónes 2007 Góðviðri í dag á mótinu og rúm 8 tonn veiddust. Stefán B,
- 30. maí 2007 – Sjónes 2007 Sjómannadagsmót Sjónes fer fram um næstu helgi, keppendur eru 31. Úrslit mótsins birtast hérna á síðunni undir flipanum mótin hérna efst á síðunni. Pétur Sig
- 28. maí 2007 – Sjóve 2007 Sjóve 2007 fór fram um Hvítasunnuhelgina, aflahæst urðu Róbert Gils Róbertsson Sjór og Sigríður Rögnvaldsdóttir Sjósigl. Úrslit mótsins eru aðgengileg hérna á síðunni undir flipanum mótin hérna efst á síðunni. Pétur Sig
- 24. maí 2007 – Sjóve 2007 Hvítasunnumót Sjóve fer fram á laugardag og sunnudag um næstu helgi, skráningu er að ljúka og eru keppendur 35. Úrslit mótsins birtast hérna á síðunni undir flipanum mótin hérna efst á síðunni. Pétur Sig
- 24. maí 2007 – Sjór 2007 Sjór 2007 fór fram um síðustu helgi, aflahæst urðu Guðrún Jóhannesdóttir Sjóak og Þorsteinn Jóhannesson Sjósigl. Úrslit mótsins eru aðgengileg hérna á síðunni undir flipanum mótin hérna efst á síðunni. Pétur Sig
- 16. maí 2007 – Fundargerð og fréttir Fundargerð aðalfundar Sjól er nú komin inn á netið undir aðalfundur 2007. Eins og sjá má hér að neðan hefur Stefán Baldvin Sigurðsson nýr formaður Sjól tekið til við að skrifa fréttir á síðuna undir merkingunni Stefán B. Pétur Sig
- 16. maí 2007 – Sjór 2007 Skráningu að ljúka nánari fréttir í kvöld. Stefán B.
- 16. apríl 2007 – Nýjar heimasíður Tvö félög hafa nýverið opnað nýjar heimasíður á netinu. Sjóve opnað nýlega sína síðu en Sjóve hefur ekki verið með heimasíðu áður. Sjósnæ hefur verið með verið með síðu til nokkura ára og hefur nú endurnýjað hana og opnað að nýju. Hægt er að skoða síðurnar með því að klikka á nöfn félaganna hér að ofan í liðnum Félög Sjól. P.S.
- 29. mars 2007 – Aðalfundur Sjól 2007 var haldinn 24. mars. Á fundinum voru til umfjöllunar hefðbundin aðalfundarstörf ásamt öðrum málum. Í ár var stjórn Sjól kosin í fyrsta skipti í samræmi við þær lagabreytingar sem samþykktar voru á síðasta aðalfundi, þ.e.a.s. formaður skuli kosinn beinni kosninga til tveggja ára í senn. Í stjórn voru kosnir Stefán Baldvin Sigurðsson Sjóak formaður, Guðmundur Kristinsson Sjór gjaldkeri og Gylfi Sigurðsson Sjósnæ ritari. Engar breytingar voru gerðar á lögum eða veiðireglum í ár. Nokkrar umræður urðu um tillögur frá Sjór sem lagðar voru fram á formannafundi 18. nóvember 2006, samþykkt var að fela stjórn að taka þær til frekari umfjöllunar. Fundargerð aðalfundarins verður birt hér á síðunni á næstunni. Undirritaður lætur nú af stjórnarsetu að eigin ósk eftir 7 ár í stjórn, vil ég nota þetta tækifæri til að óska nýrri stjórn til hamingju með embættin og þakka þeim stjórnarmönnum sem ég hef starfað með á þessum árum samstarfið. Pétur Sigurðsson formaður Sjóak
- 19 janúar 2007 – Gleðilegt nýtt sjóstangaveiðiár, ég vil byrja þennan pistil minn á því að biðja ykkur afsökunar á því hvað síðan hefur verið líflaus frá síðasta hausti en vonast eftir því að lifni yfir henni á nýju ári með hækkandi sól. Formannafundur SJÓL var haldinn 18. nóvember síðastliðinn og er fundargerðin aðgengileg hér að ofan undir Formannafundur SJÓL 2006. Eins og fram kemur í fundargerðinni þá verður aðalfundur SJÓL haldinn 24. mars. Allar tillögur að breytingum á veiðireglum og lögum þurfa að liggja fyrir 1 mánuði fyrir fund til að skoðast löglega lagðar fram. Ég hvet sjóstangaveiðifólk að kynna sér þær tillögur sem fram koma og taka afstöðu til þeirra þannig að við sem erum í forsvari fyrir félögunum höfum skýra afstöðu félagsmanna þegar að umfjöllun kemur. Þær tillögur sem fram koma verða birtar hér á síðuni undir Aðalfundur 2007 tillögur. Pétur Sig
- 31 ágúst Íslandsmeistarar 2006 – Eins og fram hefur komið hér á síðunni þá lauk Íslandsmeistarakeppninni í sjóstangaveiði þann 19 ágúst síðastliðinn með því að Sigfríð Valdimarsdóttir og Guðbjartur Gissurarson voru krýndir Íslandsmeistarar, í verðlaun hlutu þau veglega farand og eignargripi ásamt gjafabréfum frá styrktaraðilum. Íslandsmeistararnir hlutu hvort fyrir sig flugmiða fyrir tvo frá Icelandair í áætlunarflugi, gjafabréf með 30,000 kr ferðaávísun frá Smyril Line , flotbúninga frá Rafbjörg/Sjóveiði.is og sjóveiðistangir frá Nielsen Veiðivörur. Aðrir verðlaunahafar hlutu síðan gjafabréf með vöruútektum hjá eftirtöldum fyrirtækjum 66° Norður, Task ehf., Rafbjörg/Sjóveiði.is og Vesturröst. Gjafabréf þessi voru gefin af þessum fyrirtækjum ásamt Samskipum, Iceland Seafood, Saltkaupum og Sjóstangaveiðifélagi Neskaupstaðar. Stjórn Sjól þakkar þessum velunnurum okkar innilega fyrir veittan stuðning. P.S.
- 19 ágúst Íslandsmeistarar 2006 – Úrslit í Íslandsmeistarakeppninni í sjóstangaveiði var kynnt á lokamóti sumarsins Sjóak 2006 núna um helgina. Íslandsmeistarar eru Guðbjartur Gissurarson Sjór og Sigfríð Valdimarsdóttir Sjóak. Stjórn Sjól óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn. Nánari fréttir af úrslitunum hér efst á síðunni undir Íslandsmeistari.- P.S.
- 17 ágúst Íslandsmeistaraverðlaun Vesturröst styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Vesturröst kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 17 ágúst Íslandsmeistaraverðlaun Sjónes styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Sjónes kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 10 ágúst Íslandsmeistaraverðlaun Task ehf. styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Task ehf. kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 09 ágúst Íslandsmeistaraverðlaun Saltkaup styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006 eins og undanfarin ár. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Saltkaupum kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 09 ágúst Íslandsmeistaraverðlaun Iceland Seafood styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006 eins og undanfarin ár. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Iceland Seafood kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 04 júlí Íslandsmeistaraverðlaun 66 Norður styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006 eins og undanfarin ár. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við 66 Norður kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 28 júní Íslandsmeistaraverðlaun Samskip styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006 eins og undanfarin ár. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Samskipum kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 21 júní Íslandsmeistaraverðlaun Nielsen Veiðivörur styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Nielsen Veiðivörum kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 14 júní Íslandsmeistaraverðlaun Rafbjörg/Sjóveiði.is styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Birgi Ævarssyni í Rafbjörgu kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 8 júní Íslandsmeistaraverðlaun Icelandair styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Icelandair kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 19 ágúst Íslandsmeistarar 2006 ? Úrslit í Íslandsmeistarakeppninni í sjóstangaveiði var kynnt á lokamóti sumarsins Sjóak 2006 núna um helgina. Íslandsmeistarar eru Guðbjartur Gissurarson Sjór og Sigfríð Valdimarsdóttir Sjóak. Stjórn Sjól óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn. Nánari fréttir af úrslitunum hér efst á síðunni undir Íslandsmeistari.- P.S.
- 19 ágúst Sjóak 2006 ? Aðalmót Sjóak fór fram dagana 18 ? 19 ágúst. Keppendur voru 76. Úrslit mótsins byrtast hérna ? P.S.
- 10 ágúst – Íslandsmeistaraverðlaun Task ehf. styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Task ehf. kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 09 ágúst – Íslandsmeistaraverðlaun Saltkaup styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006 eins og undanfarin ár. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Saltkaupum kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 09 ágúst – Íslandsmeistaraverðlaun Iceland Seafood styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006 eins og undanfarin ár. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Iceland Seafood kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 06 ágúst Sjósigl 2006 ? Aðalmót Sjósigl fór fram núna um verslunarmannahelgina. Aflahæstu veiðimenn voru Árni Halldórsson Sjóak hjá körlunum og Kristín Þorgilsdóttir Sjósigl hjá konunum, aflahæsti skipstjóri var Sverrir Ólason Siglufirði. Úrslit mótsins er að finna hérna ? P.S.
- 31 júlí Sjósnæ 2006 ? Aðalmót Sjósnæ sem er hluti af Íslandsmeistarkeppninni í sjóstangaveiði fór fram frá Ólafsvík dagana 21 og 22 júlí. Jón Sævar Sigurðsson Sjósigl var aflahæstur karla og Sigfríð Valdimarsdóttir Sjóak aflahæst kvenna. Stærsti þorskur sem veiðst hefur frá stofnun Sjól 1991 veiddist á mótinu, en fiskinn veiddi Sigfríð Valdimarsdóttir Sjóak og reynist hann vera 25,950 kg. Úrslit mótsins er að finna hérna ? P.S.
- 05 júlí Sjógrin 2006 – Eins og flest sjóstangveiðifólk hefur fengið auglýsingu um heldur Sjóstangaveiðifélag Grindavíkur (Sjógrin) sjóstangaveiðimót í Grindavík dagana 14 ? 15 júlí næstkomandi. Sjógrin var stofnað fyrr í sumar og er mótið liður í áformum Sjógrin að sækja um aðild að SJÓL, fiskistofa hefur veidd Sjógrin leyfi til þess að halda umrætt mót. Mótsdagar eru ákveðnir af Sjógrin með tilliti til þess að vera ekki á sömu helgi og önnur mót. Forráðamenn Sjógrin hafa verið í síma og tölvusambandi við undirritaðann varðandi þau áform sín að stofna sjóstangaveiðifélag og hef ég upplýst þá samkvæmt minni bestu vitund hvaða atriði þarf að uppfylla, til að stofna og starfrækja sjóstangaveiðifélag. Pétur Sigurðsson formaður SJÓL
- 04 júlí Íslandsmeistaraverðlaun 66 Norður styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006 eins og undanfarin ár. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við 66 Norður kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 02 júlí Sjóís 2006 ? Aðalmót Sjóís sem er hluti af Íslandsmeistarkeppninni í sjóstangaveiði fór fram frá Bolungarvík um um síðustu helgi. Sjá frétt á sjois.is Úrslit mótsins er að finna hérna ? P.S.
- 28 júní Íslandsmeistaraverðlaun Samskip styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006 eins og undanfarin ár. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Samskipum kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 26 júní Sjóskip 2006 ? Aðalmót Sjóskip sem er hluti af Íslandsmeistarkeppninni í sjóstangaveiði fór fram á Akranesi um síðustu helgi. Afli var ágætur og veður með eindæmum gott. Á mótinu veiddust 13 tegundir, sem er í meira lagi, þar á meðal var 1,67 kg. skötuselur sem Rögnvaldur Heimisson Sjóak dróg og 9 gramma síli sem Arnþór Sigurðsson Sjóve veiddi. Aflahæðsta kona mótsins var Anna Jóhannesdóttir Sjóak með 363,21 kg og hjá körlunum Sævar Guðjónsson Sjósigl en hann veiddi 540,08 kg Úrslit mótsins er að finna hérna ? P.S.
- 21 júní Íslandsmeistaraverðlaun Nielsen Veiðivörur styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Nielsen Veiðivörum kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 14 júní Íslandsmeistaraverðlaun Rafbjörg/Sjóveiði.is styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Birgi Ævarssyni í Rafbjörgu kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 14 júní Sjónes 2006 ? Sjómannadagsmót Sjónes sem er hluti af Íslandsmeistarkeppninni í sjóstangaveiði fór fram á Neskaupstað um Sjómannadagshelgina. Afli var góður eins og undanfarin ár. Eins og á fyrri mótum sumarsins veiddust óvenju margir stórir fiskar Sveinn Einarsson Sjónes veiddi þorsk 19,9 kg og Guðmundur Svavarssona Sjór steinbít sem vigtaði 9,2 kg. Aflahæðsta kona mótsins var Sigfríð Valdimarsdóttir Sjóak með 893,60 kg og hjá körlunum Jón Gunnar Jónsson Sjónes veiddi 1036,75 kg Úrslit mótsins er að finna hérna ? P.S.
- 08 júní – Íslandsmeistaraverðlaun Icelandair styrkir Landssamband sjóstangaveiðifélaga við verðlaunaafhendingu til Íslandsmeistara í sjóstangaveiði 2006. Stuðningur sem þessi er mikils virði fyrir sjóstangaveiðifólk, og færum við Icelandair kærar þakkir fyrir veittan stuðning. -Pétur Sig.
- 07 júní Sjóve 2006 ? Hvítasunnumót Sjóve sem er hluti af Íslandsmeistarkeppninni í sjóstangaveiði fór fram í Vestmanneyjum um hvítasunnuhelgina. Veðurguðirnir sem stundum hafa verið í aðalhlutverki í Eyjum og hrellt keppendur, léku í þetta sinn við hvern sinn fingur og voru það sólbaðaðir og sælir keppendur sem komu að landi báða daga. Afli var góður, stór og fallegur fiskur, þrju landsmet féllu Anna Jóhannesdóttir Sjóak veiddi ufsa sem vóg 13,25 kg., Guðmundur Kristinsson Sjór veiddi löngu sem vóg 17,15 kg. og Guðbjartur Gissurarson Sjór veiddi makríl sem vóg 0,9 kg. Úrslit mótsins er að finna hérna ? P.S.
- 23 maí 2006 Sjór 2006 ? Aðalmót Sjór var haldið á Patreksfirði um síðustu helgi. Keppendur voru 45, 39 karlar og 6 konur, veðrið var í stóru hlutverki bæði var kalt og talsverður vindur, kom það þó ekki að sök því afli var góður. Móttökur Sjór voru til fyrirmyndar, boðið var upp á léttan málsverð bæði fimmtudag og föstudag og tekið á móti veiðmönnum við komuna til lands með heitu kakói og vöfflum báða dagana. Helstu tíðindi mótsins voru þau að Stefán Baldvin Sigurðsson Sjóak veiddi stórlúðu 31,5 kg sem er stærsti skráði fiskur sem veiðst hefur á mótum aðildarfélaga Sjól frá stofnun þess 1991. Úrslit mótsins er að finna hérna ? P.S.
|
|