Formannafundur SJÓL 2011 Formannfundur SJÓL, haldinn laugardaginn 3. desember 2011 kl. 10:00 Staður: Höllin, félagsheimili Sjór, Reykjavík. Mættir voru: Stefán B. Sigurðsson Sjól formaður, Gylfi Sigurðsson Sjól ritari, Páll Pálsson Sjól gjaldkeri, Pétur Sigurðsson Sjóak, Guðrún Gísladóttir Sjósnæ, Hörður Hjálmarsson Sjósigl, Matthías Sveinsson Sjónes, Þórir Sveinsson Sjóís, Elín Snorradóttir Sjór, Pétur Lárusson Sjóskip og Ólafur Hauksson Sjóve Dagskrá: 1. Fundarsetning Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Þakkaði hann Elínu formanni Sjór fyrir að lána húsið undir fundinn. 2. Tillaga aðildarfélaga um mótsdaga aðalmóta og innanfélagssmóta 2012 Aðalmót 2012 Sjór Patreksfjörður 18.-19. maí Sjóve Vestmannaeyjar 26.-27. maí Sjónes Neskaupstaður 1.-2. júní Sjóskip Akranes 22.-23. júní Sjóís Bolungarvík 6.-7. júlí Sjósnæ Ólafsvík 20.-21. júlí Sjósigl Siglufjörður 27.-28. júlí Sjóak Dalvík 17.-18. ágúst Innanfélagsmót 2012 Sjór Grundarfirði 28. apríl Sjóve Vestmannaeyjar 28. apríl/5. maí Sjónes Neskaupstaður 1. sept. Sjóskip Akranes 5. maí Sjóís Bolungarvík 11. ágúst Sjósnæ Ólafsvík 5. maí Sjósigl Siglufjörður 30. júní Sjóak Grímsey 14. júlí 3. Aðalfundur Sjól 10. mars í Höllinni félagsheimili Sjór Reykjavík 4.Fjármál Gjaldkeri fór yfir fjárhagsstöðu sambandsins. Á bankabók eru um 400 þús. kr. Eitthvað er eftir að greiða af reikningum. Greiðsla hefur ekki borist frá Sjóskip. Það tók félögin 19–103 daga að skila félagsgjaldinu til Landssambandsins. Rætt var um að gjaldkeri sendi formönnum og gjaldkerum félaganna áminningu að skila árgjaldi tímanlega. Hæðst gjald sem greitt var til sambandsins var 387 þús. kr. en lægsta gjald 35 þús. kr. Sjóskip hefur ekki verið gert upp vegna móts frá 2010. 5.Bátamál Fundarmenn greindu frá því að misvel gengi að fá báta á hverjum stað fyrir sig. Greiðslur væru mismunandi eftir félögum. Komu fram kvartanir yfir því að sumir veiðimenn væru of afskiptasamir við skipstjóra. Félögin yrðu að brýna fyrir félögum sínum að sýna skipstórum og veiðifélögum kurteisi. Umræða kom upp um lögskráningu og möguleika Sjól á að fá aðgang að Lögskráningarkerfi fyrir þá báta sem eru í mótinu. 6.Veiðireglur Rædd var hugmynd um að eldri félagar gætu fengið að vera saman á bát og jafnvel veiða aðeins annan daginn. Ábendingar komu um mótsgjald sem þyrfti að vera eitt fyrir alla. Fram kom hugmynd um breytta útfærslu varðandi sveitakeppni kvenna. Tillögur þurfa að koma fram fyrir aðalfund eigi að fjalla um málið formlega. 7.Pokar um borð Áhersla var lögð á að öll félög sæju til þess að pokar væru um borð fyrir stærstu fiskana og tegundir. 8.Fiskistofa Formaður greindi frá því að samskipti við Fiskistofu hafa gjörbreyst til batnaðar og hefði hann fengið tölvupóst frá nýjum starfsmanni sem þakkaði fyrir greinargóðar skýrslur. 9.Önnur mál Umræða kom upp um lögskráningu og möguleika Sjól á að fá aðgang að Lögskráningarkerfi fyrir þá báta sem eru í mótinu. Fram kom að ekki hafi verið greiddur kostnaður vegna hýsingar sjol.is þar sem ekki hafi verið sendur reikningur frá því að síðan var sett í hýsingu hjá Þekkingu 2004. Búið er að uppfæra fiskaskrá kerfisins og eru nú 37 tegundir þar inni. Formaður fór yfir vinnuskjal sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða. Þórir greindi frá því að hann og Anton Örn Kærnested hafa verið að vinna skráningu gagna frá mótum, það sem hann langar til að sjá að hægt sé að koma upp gagnagrunni inn á heimasíðunni frá upphafi Sjól. Þórir sagði frá alþjóðlegu strandveiðimóti í Eyjafirði sem haldið verður í lok September 2012. Ýmis önnur mál voru rædd óformlega. Formaður þakkaði fundarmönnum fyrir fundinn og óskaði þeim gleðilegra jóla. Þakkaði hann á ný fyrir afnot af húsinu og kaffiveitingar. Fundi var slitið kl. 12.45 Fundarritari: Gylfi Sigurðsson Formannafundur SJÓL 2010 Formannfundur SJÓL, haldinn laugardaginn 27. nóvember 2010 kl. 10:00 Staður: SÍM húsið, Hafnarstræti 16 í Reykjavík. Mættir voru: Stefán B. Sigurðsson formaður SJÓL, Guðmundur Kristinsson SJÓR, Guðbjartur Gizzurarson SJÓR, Páll Pálsson SJÓVE, Þórir Sveinsson SJÓÍS, Ólafur Bjarnason SJÓSIGL, Pétur Sigurðsson SJÓAK, Matthías Sveinsson SJÓNES og Gylfi SJÓSNÆ, Pétur Lárusson SJÓSKIP Dagskrá: 1. Fundarsetning Stefán formaður SJÓL bauð alla velkomna, setti fundinn og fór yfir mætingu. Mættir voru formenn 5 félaga og staðgenglar formanna fyrir hin 3. 2. Tillögur aðildarfélaga um mótsdaga aðalmóta og innanfélagsmóta sumarið 2011 Farið var yfir dagsetningar móta næsta árs (2011) og eftirtaldir dagar ákveðnir: Aðalmót 2011 SJÓR Patreksfjörður 20–21 maí. SJÓNES Neskaupstaður 3–4 júní. SJÓVE Vestmannaeyjar 11–12 júní. SJÓSKIP Akranes 24–25 júní. SJÓÍS Bolungarvík 1–2 júlí. SJÓSNÆ Ólafsvík 15–16 júlí. SJÓSIGL Siglufjörður 22–23 júlí. SJÓAK Dalvík 12–13 ágúst. Innanfélagsmót 2011 SJÓR Grundarfjörður 30. apríl SJÓNES Neskaupstaður 3. september SJÓVE Vestmannaeyjar 9. apríl SJÓSKIP Akranes 29. apríl SJÓÍS Bolungarvík 20. ágúst SJÓSNÆ Ólafsvík 7. maí SJÓSIGL Siglufjörður 18. júní SJÓAK Grímsey 9. Júlí 3. Tímasetning og staðsetning aðalfundar SJÓL 2011 Ákveðið var að halda aðalfundinn í Reykjavík 5. mars 2011. Formaður SJÓL mun ákveða fundarstað í borginni. 4. Heimasíða og reiknikerfi SJÓL Stefán benti á að breytingar á reiknikerfinu kosta töluverða peninga en það hefur verið í góðri þróun undanfarin ár. Spurt var um hvað lægi bakvið þann kostnað. Pétur Sigurðsson fór yfir hvaða breytingar hefðu verið gerðar á reiknikerfinu og benti m.a. á að kennitölur félagsmanna sjást ekki lengur á heimasíðunni, ýmsar breytingar hefðu verið gerðar varðandi undirbúning móta eins og útprentanir, röðun á báta, skýrslur sitthvorn daginn, skýrslu fyrir fiskistofu, sundirliðun á stigum, límmiðar, kassakvittanir, aðgengi að mótskýrslum fyrir þá sem eru skráðir inn, ekki sé hægt að skrá 2 skipstjóra á sama bát, reiknimeistari getur sjálfur birt niðurstöður móta og þarf ekki að hafa samband við formann Sjól o. fl. Bent var á að gott væri að hafa aðgengi að aflaskýrslu pr. keppanda, brúttóvigt þurfi að skrá inn og að nafnið á bát kæmi fram en ekki bara keppnisnúmer báts heldur einnig skipaskránúmer. Ekki væri hægt að birta niðurstöður innanfélagsmóta á netinu spurning hvort eigi að breyta því. Athugasemd vegna t.d. innanfélagsmóta ef breyta þarf keppnisdegi vegna veðurs þá er það formaður Sjól sem á að fá þær upplýsingar og hann getur breytt því í kefinu en ekki viðkomandi félag. Formaður er tengiaðili við Fiskstofu og hann einn sér um þau samskipti . Rætt var um að skrá þyrfti undirmál á öllum mótum og útbúa sér reit fyrir það til að samræm sé milli móta. Pétur bað um að menn myndu setja á blað það sem menn vilja breyta og senda það inn fyrir aðalfund. 5. Fjárhagsstaða SJÓL Guðbjartur fór yfir stöðu Landsambandsins staðan er ágæt eða inneign um 350.000.- en 2 félög eiga enn eftir að greiða sinn hlut frá sumrinu. Einnig á eftir að greiða nokkra reikninga. Síðast var sett út á að rétta skýrslur væru ekki sendar með uppgjöri en staðan í dag er sú að þeir sem hafa greitt hafa sent réttar skýrslur. 6. Kostun og fyrirkomulag verðlauna til Íslandsmeistara 2010. Fjármögnun hefur gengið vel, áhersla hefur verið á gjafabréf, veiðivörur og útvistavörur. Alls voru veitt verðlaun að upphæð 620 þús. kr. í formi gjafabréfa og greiddi SJÓL rúmlega 400 þús. kr. fyrir þau en 220 þús. kom frá styrktaraðilum. Menn ræddu um að betur mætti auglýsa styrktaraðilana. Talað um að útbúa skiltarúllu sem færi milli móta , athuga með kostnað við að útbúa þetta fyrir öll félög og að styrktaraðilar komi fram í veiðiskýrslum. Stjórnin mun fara yfir þetta og setja þetta í réttan farveg. Karlabikarinn er orðin gamall og kom fram að Sjóvélar eru tilbúnir að styrkja okkur um nýjan bikar og hafa hann í sama stíl og nýja kvennabikarinn. Það þarf að laga merkingar á farandbikara og setja inn á heimasíðu Sjól hverjir hafa verið handhafar þeirra síðustu árin. Einnig mætti bæta upplýsingum til félagsmanna t.d. á heimasíðuna um fyrir hvað eru veitt verðlaun. 7. Hugmyndir að breyttu fyrirkomulagi um dreifingu tekna/útgjalda á mótum SJÓL Engin tillaga kom fram um þennan lið. 8. Tillögur að breytingum á veiðireglum/lögum SJÓL. Pétur kom með hugmyndir varðandi breytingu á fyrirkomulag á keppni kvenna í sjóstangaveiði. Hann lagði til að félögin leituðu eftir afstöðu þeirra kvenna sem tekið hafa þátt í mótum á síðustu árum varðandi fyrirkomulagið sem felur í sér eftirfarandi. Kynskipt sveitakeppni í núverandi mynd verði aflögð. Sveitakeppni verði framvegis í blönduðum sveitum. Verðlaun verða fyrir þrjár efstu sveitir. Mótshaldara er þó heimilt að hafa kynskipta sveitakeppni ef taldar eru líkur á því að þrjár eða fleirri sveitir verði skráðar til keppni. Einnig að stigakeppni verði breytt þannig að einungis verða reiknuð ein mótsstig sem gilda bæði fyrir karla og konur, líkt og gert er bæði með bátastig og bónusstig. Rætt var um hvort eigi að breyta gr. 12 í veiðireglum þ.e. hvort að eigi að draga á báta sitthvorn daginn í öllum mótum og samræma þetta eða leyfa mótshaldara að velja eins og nú er. Rætt var um 9 gr. veiðiregla SJÓL um aðstoðarmenn og boðuð breytingartillaga á aðalfundi. Einnig var rætt um 11 gr. varðandi útdrátt á báta þar gæti líka komið breytingartillaga. 9. Yfirlit yfir gang móta sumarið 2009. Formaður fór yfir breytingar á niðurstöðum móta milli áranna 2009 og 2010 sem er í raun mjög mikil. 10. Upplýsingagjöf til Fiskistofu 2010 Hugmynd að gera þetta sjálfvirkt og ekki sé hægt að draga á báta fyrr en búið er að senda upplýsingar til Fiskistofu. 11. Notkun tékklista fyrir mót sumarið 2010 Formaður ætlar að senda okkur tékklista sem síðan félög geta aðlaga og þróað til að koma í veg fyrir mistök. 12. Önnur mál #Opna netið vegna innanfélagsmóta. Gæti líka auðveldað þá vinnu sem formaður þarf að inna af hendi við að senda til Fiskistofu. #Lögskráning á alla báta, nýjar reglur frá siglingamálastofnun hvernig kemur það við okkur ? Þarf að ganga í þessu mál og fá alveg skýrar línur frá Siglingamálastofnun skriflega til að fyrirbyggja allan miskilning og þetta sé allt á hreinu. #Athuga þarf með reglur hvort að strandveiðibátar megi vera með og að þeir missi ekki sín leyfi. #Boðun á mót hvort eigi að gera eitthvað sameiginlega rafrænt til að spara kostnað við að senda út bréf. Minnt á að senda út bréf tímalega. #Varðandi tilkynningar á mót þá þarf að færa lokadag tilkynningar fram þannig að hann lendi ekki á helgi þ.e. flýta þessu til að auðvelda undirbúning. #Spurning um hvort keppendur geti skráð sig í mót beint á netið. #Stjórn athugi þessi mál fyrir aðalfund og komi með tillögur ef þörf þykir. #Guðbjartur tilkynnti að síðasta laugardag hefðu verið stofnuð Samtök íslenskra fiskimanna og aðal tilgangur er að leyfa frjálsar handfæraveiðar #Efsa hélt um 140 manna Evrópumót á Dalvík sl. sumar og tókst það vel og var góð kynning fyrir bæði sjóstöngina og landið. #Auka þarf áhuga hjá öllum og reyna að koma meiri umræðu í fjölmiðla um sjóstangaveiði. Fundi slitið kl. 12:45 Páll Pálsson ritari. Formannafundur SJÓL 2009 Formannfundur SJÓL, laugardaginn 21. nóvember 2009 kl. 10 til 15:30 Staður: Strikið, Skipagötu 14 efstu hæð, Akureyri Mættir voru: Stefán B. Sigurðsson SJÓL, Guðmundur Kristinsson SJÓR, Páll Pálsson SJÓVE, Þórir Sveinsson SJÓÍS, Hörður Þór Hjálmarsson SJÓSIGL, Pétur Sigurðsson SJÓAK, Matthías Sveinsson SJÓNES og Jón B. Andrésson SJÓSNÆ. Dagskrá: 1. Fundarsetning Stefán formaður SJÓL bauð alla velkomna og setti fundinn. Það kom ábending frá Þóri um að það hefði gleymst að senda út fundagerð síðasta formannafundar. Stefán sagði hana vera á heimasíðu Landssambandsins en mun senda hana strax út til formanna í tölvupósti. 2. Tillögur aðildarfélaga um mótsdaga aðalmóta og innanfélagsmóta sumarið 2010 Farið var yfir dagsetningar móta næsta árs (2010) Aðalmót 2010 SJÓR Patreksfjörður 14–15 maí. SJÓVE Vestmannaeyjar 22–23 maí. SJÓNES Neskaupstaður 4–5 júní. SJÓSKIP Akranes 18–19 júní. SJÓÍS Bolungarvík 2–3 júlí. SJÓSNÆ Ólafsvík 16–17 júlí. SJÓSIGL Siglufjörður 23–24 júlí SJÓAK Dalvík 20–21 Ágúst. Innanfélagsmót 2010 SJÓR Patreksfjörður 23. apríl SJÓVE Vestmannaeyjar 8. maí SJÓNES Neskaupstaður 4. september SJÓSKIP Akranes 8. maí SJÓÍS Bolungarvík 14. ágúst SJÓSNÆ Ólafsvík 1. maí SJÓSIGL Siglufjörður 12. júní SJÓAK Dalvík 10. júlí 3. Tímasetning og staðsetning aðalfundar SJÓL 2010 Ákveðið var að halda aðalfundinn í Reykjavík 6. mars 2010. Tilboð liggur frá SJOR um að nota sal þeirra án endurgjalds en formaður SJÓL mun ákveða fundarstað. 4. Heimasíða og reiknikerfi SJÓL Nokkrar umræður voru um tölvukerfið m.a. ábending um að kennitölur séu aðgengar öllum sem fara inná heimasíðuna. Ákveðið að færa þær inn á lokaða svæðið. Rætt um að bæta inn í kerfið svo hægt sé að draga í stæði á bátum, rætt um betri lausnir á útprentunum t.d. trúnaðarskýrslur og fl. Varðandi heimasíðuna þá voru menn almennt ánægðir með hana, mætti helst bæta oftar fréttum á síðuna, en láta aðra aðila s.s. eins heimasíður félaganna og Sjóstöngin.is sjá um myndir og annað til skemmtunar. 5. Fjárhagsstaða SJÓL Guðmundur fór yfir stöðu Landsambandsins og er inná reikningum þess um kr. 810 þús. Fram kom að 2 félög eiga enn eftir að greiða sinn hlut frá sumrinu. Einnig kom fram sú ábending til að öll félög verði að skila til gjaldkera SJÓL svokölluðum afreikningi frá Fiskimörkuðum til að hafa allt á hreinu gagnvart Fiskistofu. 6. Kostun og fyrirkomulag verðlauna til Íslandsmeistara 2009. Alls voru veitt verðlaun að upphæð 620 þús. kr. í formi gjafabréfa og greiddi SJÓL 400 þús. kr. fyrir þau. 220 þús. voru styrkir frá styrktaraðilum. Menn ræddu um að betur mætti auglýsa styrktaraðilana t.d. í formi auglýsingaskilda, plaköt eða eitthvað í þeim dúr og best væri að gera þetta tímalega þannig að allt væri klárt þegar vertíðin hæfist. Einnig mætti bæta upplýsingum til félagsmanna t.d. á heimasíðunni um fyrir hvað eru veitt verðlaun. 7. Hugmyndir að breyttu fyrirkomulagi um dreifingu tekna/útgjalda á mótum SJÓL Töluvert var rætt um að breyta þessu þ.e. að ákveðið hlutfall að tekjum færu í samaeiginlegan sjóð og deildist síðan á félögin eftir ákveðnu kerfi. Var sett upp dæmi þar sem 40% færi beint í viðkomandi félag síðan 60 % skipt í milli félaga. Var þessu varpað upp og ýmsir möguleikar skoðaðir og var ákveðið að senda formönnum þetta exelskjal þar sem menn geta skoðað þetta betur og breytt forsendum. Einnig var rætt um hvort fella ætti niður eða lækka þátttökugjald á mótum. Menn vildu að þetta yrði skoðað vel þar sem þátttökugjöldin væru mikilvæg fyrir félög sem stæðu illa. Sum félög eru í basli við að senda keppendur á önnur mót. Rætt um hvað félög er misdugleg við að hvetja félaga sína til að mæta á mót annarra. 8. Tillögur að breytingum á veiðireglum/lögum SJÓL. Rætt var um 9gr. Veiðiregla SJÓL um hjálparmenn og boðuð breytingartillaga á aðalfundi. Einnig var rætt um 11gr. um útdrátt á báta þar gæti líka komið breytingartillaga. 9. Yfirlit yfir gang móta sumarið 2009. Alls veiddust 177.081 kg. Þar af 155.733 kg. af þorski. Ein ný tegund veiddist á árinu en það var Marhnýtill. Tvö landsmet voru slegin, steinbítur og makríll. Mótin gengu nokkuð vel hjá öllum, það gekk vel að láta tölvuna draga á bátana, einnig kom fram að verður stöðugt erfiðara að fá báta og er oft að reddast á síðustu mín. Verð sem félögin fá fyrir fisk veiddan á mótunum er mjög misjafnt, allt að 300% munur 10. Upplýsingagjöf til Fiskistofu 2010 Formaður sá um að koma veiðiskýrslum til Fiskistofu frá félögum reyndar vantaði eitt innanfélagsmót en það var skilað beint. Var ítrekað að formaður sjái um öll skil á mótum. 11. Notkun tékklista fyrir mót sumarið 2010 Formaður ætlar að senda tillögu að tékklista á alla og stefnt sé að nota á öllum mótum. 12. Önnur mál a) Veiðiskýrsla 2004. SJÓL vantar veiðiskýrslur fyrir 2004 vegna Hafró. Félögin þurfa að senda til formanns gögnin. Helst skönnuð rafrænt. b) Veiðiskýrslur 2008 Formenn minntir á að senda á hin félögin prentaðar veiðiskýrslur vegna 2009 c) Bréf frá Þóri Sveinssyni. Rætt bréf frá Þóri þar sem hann lýsir yfir áhyggjum sínum vegna neikvæðrar afstöðu ráðuneytismanna til sjóstangaveiði SJÓL félaga. Formaður SJÓL hefur talað við þá hjá ráðuneytinu m.a. aðstoðarmann ráðherra og skýrt okkar mál og fengið jákvæð viðbrögð. Formaður gerir ráð fyrir að hitta ráðherra til að fara enn betur yfir okkar mál. Það þarf að setja þessa umræðu alla í betri farveg og meira á jákvæðan hátt og menn mega ekki vera að ýta undir það neikvæða. Formaður SJÓL er einn sem talar máli SJÓL. Ekki ráðlegt að blanda saman málefnum SJÓL og EFSA. Fundi slitið kl. 15:30 Páll Pálsson ritari. Formannafundur SJÓL 2008 Dagsetning: 8. nóvember 2008 kl. 10 Staður: Turninn, Kópavogi Mætir: Stefán B. Sigurðsson, formaður Sjól, Gylfi Sigurðsson, ritari Sjól, Guðmundur Kristinsson, gjaldkeri Sjól, Pétur Sigurðsson, Sjóak, Magnús Guðmundsson, Sjósnæ, Ólafur Hauksson, Sjóve, Pétur Lárusson, Sjóskip, Hörður Hjálmarsson, Sjósigl, Matthías Sveinsson, Sjónes og Þórir Sveinsson, Sjóís. 1. Fundarsetning Formaður setti fundinn, bauð fundarmenn velkomna og þakkaði samstarfið á nýliðnu veiðisumri. 2. Tillögur aðildarfélaga um mótsdaga aðalmóta og innanfélagsmóta sumarið 2009 Aðalmót: Sjór 22.-23. maí Patreksfirði Sjóve 30.-31. maí Vestmannaeyjum Sjónes 5.-6. júní Neskaupsstað Sjóskip 19.-20. júní Akranesi Sjóís 3.-4. júlí Bolungarvík Sjósnæ 17.-18. júlí Ólafsvík Sjósigl 24.-25. júlí Siglufirði Sjóak 14.-15. ágúst Dalvík Innanfélagsmót: Sjóve 2. maí Vestmannaeyjum Sjósnæ 2. maí Ólafsvík Sjór 2. maí Grundarfirði Sjónes 2. maí Neskaupsstað Akranes 2. maí Akranesi Sjóís 16. maí Bolungarvík Sjóak 27. júní Grímsey Sjósigl 27. júní Siglufirði 3. Tímasetning og staðsetning aðalfundar SJÓL 2009 Ákveðið var að halda aðalfundinn í Reykjavík 21. mars. Ákveðið var að halda næsta formannafund í Ólafsvík. 4. Heimasíða og reiknikerfi SJÓL Formaður upplýsti um vandamál við reiknikerfið vegna uppgjörs hvers veiðidags. Ákveðið var að fela Pétri Sigurðssyni, Sjóak og Gunnari Rúnarssyni, Sjóak að vinna með hönnuði kerfisins við lagfæringar á því. Formenn félagann hvattir til að senda ábendingar til Péturs fyrir 1. des. nk. 5. Kostun og fyrirkomulag verðlauna til Íslandsmeistara 2008. Gjaldkeri upplýsti kostnað sambandsins við gjafabréf og verðlauna og að félögin hafi ekki þurft að leggja fé til verðlaunanna. 6. Tillögur að breytingum á veiðireglum Sjól. Ólafur Pétur Hauksson, Sjóve lagði fram hugmyndir að breytingum á 9. gr. um hjálparmenn. Páll Pálsson, Sjóve lagði fram hugmyndir að breytingum á 11. gr. um útdrátt á báta. Hörður Hjálmarsson, Sjósigl lagði fram hugmyndir að breytingum við 9. gr. um hjálparmenn og á 16. gr. um stig og verðlaun og skipan í sveitir. Lagt fram til kynningar. 7. Fjárhagsstaða Sjól. Gjaldkeri kynnti fjárhagsstöðu landssambandsins. Inni á reikningi er 514 þús. kr. en tvö félög eiga eftir að greiða og ítrekaði hann að félög sendu afrit af sölunótu frá fiskmarkaði við uppgjör. 8. Yfirlit yfir gang móta sumarið 2008 Mótin gengu flest vel þrátt fyrir hnökra við útreikninga. 9. Fyrirkomulag á upplýsingagjöf til Fiskistofu 2009 Formaður hafði séð um að koma veiðiskýrslu til Fiskistofu frá félögum. Sama fyrirkomulag verði næsta veiðisumar. 10. Tékklistar fyrir mót Formaður er að vinna tékklista fyrir aðalmótin og verður hann tilbúinn fyrir aðalfund. 11. Þátttökugjöld á aðalmótum 2009 Rætt var um hvort samræma ætti gjöld eða sleppa gjöldum. Niðurstaða var að hvert félag bæri ábyrgð á ákvörðun gjalda á eigin mótum. 12. Önnur mál a. Fækkun króka Rætt var um hvort hafa ætti frumkvæði að því að fækka um einn krók vegna samdráttar á veiðiheimildum. Hugmyndum um slíkt var hafnað. Formaður þakkaði góða fundarsetu og sleit fundi kl. 13.45. Gylfi Sigurðsson, ritari Formannafundur SJÓL 2007 Dagsetning: 10. nóvember 2007 kl. 10 Staður: Norræna húsið Viðstaddir: Stefán B. Sigurðsson, formaður Sjól, Gylfi Sigurðsson, ritari Sjól, Guðmundur Kristinsson, gjaldkeri Sjól, Pétur Sigurðsson, Sjóak, Hörður Hjálmarsson, Sjósigl, Þórir Sveinsson, Sjís, Pétur Lárusson, Sjóskip, Magnús Guðmundsson, Sjósnæ. Boðuð forföll: Elínborg Bernódusdóttir, Sjóve, Matthías Sveinsson, Sjónes. Fundarmenn sendu Matthíasi Sveinssyni hlýjar kveðjur í veikindum dóttur hans. 1. Fundarsetning Formaður setti fundinn, bauð fundarmenn velkomna og þakkaði samstarfið á nýliðnu veiðisumri. 2. Mótsdagar aðalmót 2008 Samþykktar voru eftirtaldar dagsetningar: Sjóve 10.-11. maí Vestmanneyjar Sjór 23.-24. maí Patreksfjörður Sjónes 30.-31. maí Neskaupsstaður Sjóskip 13.-14. júní Akranes Sjóís 4.-5. júlí Bolungarvík Sjósnæ 18.-19. júlí Ólafsvík Sjósigl 1.-2. ágúst Siglufirði Sjóak 15.-16. ágúst Dalvík 3. Upplýsingar formanna um innanfélagmót Formenn lögðu fram drög að tímasetningu innanfélagsmóta: Sjósnæ 3. maí Ólafsvík Sjóve 5. sept Vestmannaeyjar Sjóskip 3. maí Akranes Sjór 3. maí Grundarfjörður Sjóís 16. maí Bolungarvík Sjónes 17. maí Neskaupsstaður Sjósigl 28. júní Siglufjörður Sjóak 28. júní Grímsey 4. Aðalfundur 2008 Aðalfundur verður haldinn 8. mars 2008 kl. 10 Hörður spurði hvort ekki mætti fara með formannafundinn og aðalfundi út í heimabyggð félaganna. Gylfi gerði það að tillögu sinni að fara með næsta aðalfund á Akranes. Var Pétri Lárussyni falið að kanna möguleika þess. 5. Heimasíða og reiknikerfi Stefán sagði frá heimasíðunni og möguleikum sem félögin geta nýtt sér, m.a. að í lok hvers móts gæti félögin prentað út skýrslu til Fiskistofu. Pétur Sigurðsson greindi frá því að Sjól væri búið að greiða upp vinnu við síðuna á árinu. Formenn voru hvattir til að uppfæra félagatalið hjá sínu félagi. Rætt var um að aðgengi að úrslitum á heimsíðunni á opnum mótum. 6. Kostun og fyrirkomulag Íslandsmeistaraverðlauna og annarra verðlauna Sjól 2008 Formaður greindi frá fyrirkomulagi á síðasta lokahófi. Félögin greiddu 50.000 kr. verðlaunafé sem nýtt var til að kaupa gjafabréf. Gjaldkeri taldi að ekki þyrfti að rukka meira en 30.000 kr. fyrir næsta ár. Umræður urðu nokkrar um málið en ákvörðun ekki tekin. 7. Tillögur að breytingum og reglum um sjóstangaveiði Pétur Sigurðsson lagði fram tillögur að breytingum á reglum um sjóstangaveiði, á 10., 11., 15., 16. og 17. grein. Sjá fylgiskjal. Samþykkt var að senda þetta til félaganna. Félögin skili áliti til stjórnar Sjól fyrir lok janúarmánaðar 2008. 8. Fjárhagsstaða Gjaldkeri greindi frá fjárhagsstöðu Sjól og taldi hana ásættanlega. 9. Frá Fiskistofu Formaður Sjól upplýsti að borist hafi ábending frá Fiskistofu um vanhöld á skil á skýrslum til stofnunarinnar. Unnið er að því að skila skýrslu til Fiskistofu. 10. Notkun tékklista við framkvæmd móta Formaður Sjól upplýsti að hann væri að vinna tékklista við framkvæmd móta. Fundargestir lýsti ánægju sinni með það. 11. Metfiskar Þórir Sveinsson hefur útbúið lista yfir metfiska veiddir á mótum Sjól frá 1991. Verður hann settur inn á heimasíðuna og óskað eftir athugasemdum. 12. Önnur mál a. Bréf frá EFSA Ísland Lagt var fram bréf með hugmyndum að samstarfi Sjól og EFSA. Samþykkt var að senda bréfið til umræðu í félögunum. Félögin skili til stjórnar Sjól áliti fyrir janúarlok 2008. Stjórn Sjól ræði við stjórn EFSA fyrir febrúarlok. b. Mótsgjöld Guðmundur Kristinsson lagði fram hugleiðingu um hvort fella eigi niður mótsgjöld á opnum mótum. Fundi lauk kl. 14 Fundarritari: Gylfi Sigurðsson |