Lög
Landssambands sjóstangaveiðifélaga
(samþykkt á aðalfundi 1. apríl 2006 í Reykjavík og breyting á 10. gr. á aðalfundi á Akranesi 8. Mars 2008, engar breytingar á aðalfundi í Reykjavík 2009)
1. gr. Nafn.
- Nafn sambandsins er Landssamband sjóstangaveiðifélaga, skammstafað Sjól.
- Heimili fylgir formanni.
2. gr. Tilgangur.
- Vera málsvari sjóstangaveiðifélaga í landinu.
- Stuðla að góðri samvinnu við stjórnvöld varðandi mótshald og auka skilning þeirra og almennings á málefnum sjóstangaveiðimanna.
- Samræma reglur um sjóstangaveiði.
- Vera samræmingaraðili um mótshald aðildarfélaga.
- Halda skrá yfir stærstu fiska hverrar tegundar sem veiðast í mótum aðildarfélaganna.
- Setja reglur um keppni til Íslandsmeistara og sjá um upplýsingagjöf frá aðildarfélögunum varðandi stigagjöf þar að lútandi.
- Birta á heimasíðu Sjól upplýsingar um keppnir í sjóstangaveiði á Íslandi, s.s. um úrslit móta og um væntanleg mót. Ennfremur að birta þar ýmsar gagnlegar upplýsingar sem geti elft og aukið þekkingu og virðingu á sjóstangaveiðiíþróttinni.
- Stuðla að góðum samskiptum við erlend sjóstangaveiðisambönd og vera forsvarsmönnum ferðamála innan handa varðandi erlenda veiðimenn sem stunda vilja íþróttina hér á landi. Stjórn Sjól tilnefnir fulltrúa sinn til að fara með þessi mál.
- Jafna ágreining sem upp kann að koma milli aðildarfélaga. Sjól hefur úrskurðarvald í ágreiningsmálum ef aðilar óska þess.
3. gr. Aðildarfélög.
- Öll sjóstangaveiðifélög geta sótt um aðild að Sjól.
- Stjórn Sjól tekur ákvarðanir um inntöku. Sú meginregla skal viðhöfð að viðkomandi félag hafi haldið eitt mót, sem boðað hefur verið út til allra aðildarfélaga Sjól. Inntaka skal rædd og staðfest eða hafnað af einföldum meirihluta fulltrúa á næsta aðalfundi Sjól þar á eftir, enda liggi þá fyrir boðun um annað mót hjá viðkomandi félagi.
4. gr. Aðalfundur.
- Aðalfundur er æðsta vald landssambandsins. Aðalfund skal halda árlega á tímabilinu janúar-apríl, stjórn Sjól ákveður innan tímamarkanna tímasetningu aðalfundar og fundarstað.
- Stjórn Sjól skal boða til aðalfundar með minnst 30 daga fyrirvara með tilgreindri dagskrá í fundarboði.
- Aðalfundurinn telst lögmætur sé löglega til hans boðað og 2/3 þeirra fulltrúa sem rétt hafa til setu á fundinum séu mættir. Aukaaðalfund skal boða innan 30 daga ef ekki tekst að boða til lögmæts aðalfundar og telst aukaaðalfundurinn lögmætur ef meirihluti fulltrúa mætir.
- Formannaskipti skulu fara fram á aðalfundi annað hvert ár.
- Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála. Varðandi lagabreytingar skulu 2/3 greiddra atkvæða ráða úrslitum.
- Dagskrá aðalfundar.
a. Kosning fundarstjóra og ritara.
b. Skýrsla stjórnar.
c. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
d. Lagabreytingar.
e. Kosning formanns.
f. Kosning stjórnar.
g. Kosning skoðunarmanns.
h. Ákvörðun árgjalds.
i. Önnur mál.
5. gr. Fulltrúar á aðalfundi.
- Hvert aðildarfélag á rétt á tveimur fulltrúum á aðalfund. Félög skulu tilkynna fulltrúa sína og einn til vara til formanns stjórnar Sjól fyrir aðalfund.
- Fulltrúar hafa því aðeins rétt til setu á aðalfundi að félög þeirra hafi greitt árgjöld sín.
6. gr. Lagabreytingar.
Tillögum um lagabreytingar og breytingar á veiðireglum skal senda stjórn landssambandsins og stjórnum allra aðildarfélaga minnst mánuði fyrir aðalfund.
7. gr. Kosning formanns og stjórnar.
- Stjórn Sjól skal skal skipuð þremur mönnum sem kosnir eru á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega til tveggja ára. Varamenn stjórnarmanna skulu tilnefndir á aðalfundi frá sömu félögum og þeir. Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund. Þeir sem flest atkvæði fá, hljóta kosningu. Hlutköstur skal ráða ef kosning endar á jafnri tölu atkvæða.
- Forfallist stjórnarmaður skal varamaður taka sæti hans innan 30 daga frá því að fulltrúinn forfallaðist.
- Aðrir stjórnarmenn en formaður skulu sitja eitt ár í senn.
- Kosinn skal skoðunarmaður reikninga til eins árs í senn.
8. gr. Störf stjórnar.
- Stjórnin fer með mál Sjól milli aðalfunda og kemur fram fyrir hönd þess.
- Stjórn Sjól skal heimilt að kveða sér til aðstoðar einstaka félaga til afmarkaðra verkefna, nefndarstarfa og þess háttar.
- Stjórnarmaður sem getur ekki sótt fund skal boða varafulltrúa í sinn stað. Verði þessu ekki við komið kveður formaður Sjól til varafulltrúa úr viðkomandi félagi.
- Skylt er að halda stjórnarfund með fulltrúa frá öllum félögum ef fjögur eða fleiri aðildarfélög óska þess, enda geri þeir grein fyrir fundarefni.
- Formaður Sjól á rétt á styrk frá landssambandinu vegna afhendingar Íslandsmeistaratitils í formi ferðakostnaðar og gistingar, þó ekki hærri upphæð en nemur tveimur meðaltals mótsgjöldum aðildarfélaganna. Þá skal formaður Sjól geta sótt mót án þátttöku og lokahófsgjalds og sé það mótshaldara hverju sinni að greiða þann kostnað.
- Sérstakan formannafund skal halda að loknu keppnistímabilinu í september-nóvember til undirbúnings aðalfundi. Skýrslur starfandi starfshópa skulu liggja fyrir á þessum fundi.
- Stjórn Sjól úthlutar félögum veiðidögum og veiðistað að fenginni umsögn formannafundar (haustfundar) á umsóknum félaganna. Umsóknir skulu berast stjórn eigi síðar en þremur vikum fyrir væntanlegan fund þannig að hægt sé að kynna umsóknirnar í fundarboði. Ef ekki næst samstaða um úthlutun má skjóta málinu til næsta aðalfundar til úrskurðar. Leitast skal við að veiðitími og veiðistaðir skarist ekki hjá félögunum.
9. gr. Skráning í mót.
Aðildarfélög Sjól halda keppnir til Íslandsmeistara eftir reglum um sjóstangaveiði samþykktum á aðalfundi Sjól.
10. gr. Endadægur.
- Komi fram vilji meirihluta aðildarfélaga eða stjórnar um að Sjól skuli lagt niður, skal málið tekið fyrir á tveimur næstu aðalfundum til endanlegrar afgreiðslu.
- Slitin nái því aðeins fram að ganga að 2/3 réttkjörinna aðildarfulltrúa samþykki þau.
- Síðasti aðalfundur ráðstafi eignum sambandsins til aðildarfélaganna.