Aðalfundur SJÓL 2011 Aðalfundur SJÓL fyrir árið 2010 var haldinn á Grand hótel, Reykjavík 5. mars 2011 og hófst hann kl 10:00 Mættir voru: Stefán B. Sigurðsson formaður Sjól, Guðbjartur Gissurarson gjaldkeri Sjól, Páll Pálsson ritari Sjól/Sjóve, Ólafur Hauksson Sjóve, Pétur Sigurðsson Sjóak, Guðrún Rúnarsdóttir Sjóak, Mattías Sveinsson Sjónes, Guðmundur Svavarsson Sjór, Elín Snorradóttir Sjór, Þórir Sveinsson Sjóís, Sigríður Jóhannsdóttir Sjóís, Gylfi Sigurðsson Sjósnæ, Guðrún Gísladóttir Sjósnæ, Hörður Hjálmarsson Sjósigl. Ólafur Bjarnason,.Sjósigl. Tveir fulltrúar frá hverju félagi hafa kosningarétt, þannig að á fundinn mættu 13 sem hafa þann rétt. Stefán bauð alla velkomna og setti fundinn, mættir voru frá öllum félögum utan Sjóskip. Frá Sjónes kom einn fulltrúi. Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum SJÓL a) Kosning fundarstjóra og ritara b) Skýrsla stjórnar c) Endurskoðir reikningar lagðir fram. d) Lagabreytingar. e) Kosning formanns. f) Kosning stjórnar g) Kosning skoðunarmanna. h) Ákvörðun árgjalds. i) Önnur mál. a) Kosninga fundarstjóra og ritara Stefán B. Sigurðsson kosinn fundastjóri og Páll Pálsson ritari. b) Skýrsla stjórnar Stefán fór yfir skýrslu stjórnar og er hún í fylgiskjal (nr 1) með þessari fundagerð. Stefán ætlar að senda skýrsluna út rafrænt. Fjallaði Stefán m.a. um reiknikerfi Sjól, styrktaraðila, farið var yfir mót ársins 2010 og sí aukna kröfu frá ráðuneytinu um að landssambandið geti veitt upplýsingar um rekstur móta. 171 einstaklingur tók þátt í 8 aðalmótum ársins, þar af 19 konur. Keppendur voru 343 samtals í mótunum átta og veiddu þeir samtals 156 tonn eða að meðaltali 456 kg pr keppanda yfir árið. 16 fiskitegundir veiddust. Íslandsmeistar á árinu voru Einar Þ. Pálsson og Svala Júlía Ólafsdóttir . 4 fyrirtæki styrku landsambandið þau eru 66º, Olis/ Ellingsen, Vesturröst og Cintamani og þakkaði Stefán fyrir þessa styrki sem notaðir voru til að kosta verðlaun landsambandsins. Öll aðildafélög Sjól héldu innanfélagsmót sín en það kom fyrir að fresta þurfti mótum sökum veðurs. Farið yfir samband við ráðuneytið og nokkur atriði sem koma þurfa fram t.d. varðandi upplýsingar um rekstur móta. Að öðru leyti er vísað í skýrsluna sem fylgir fundargerðinni sem fylgiskjal nr. 1. Skýrslan formanns samþykkt einróma. c) Endurskoðir reikningar lagðir fram. Guðbjartur gjaldkeri Sjól fór yfir ársreikninga landsambandsins. Tap varð á rekstri á árinu upp á 229 þúsund. Þórir benti á að það þyrfti að bregðast við tapi og Sjól getur ekki verið rekið með tapi í langan tíma. Pétur benti á að tekjur hafi dregist saman og einnig að miklar breytingar hafa verið á reikningskerfinu sem hafi kostað sitt. Ekki séu áætlaðar fleiri breytingar og þar af leiðandi ætti ekki að koma mikill kostnaður á næstunni. Benti jafnframt á að stjórnin þyrfti að aðlaga kostnað vegna verðlauna að tekjum. Guðbjartur sá fram á að kostnaður við reikninskerfið myndi lækka allverulega á næstu árum. Mattías spurði hvers vegna enginn kostnaður væri vegna trygginga. Stefán sagði að þarna hefðu komið upp misskilningur innan stjórnar varðandi kaup á tryggingum en þetta sé komið í rétt horf núna. Í ljós koma að misfarist hafði að setja inn hlut af styrkjum styrktaraðila (bæði inn og út). Ákveðið var að setja það inn og senda nýja ársreikninga út með leiðréttingu. Þetta breytir þó ekki á neinn hátt niðurstöðu ársreiknings. Reikningar samþykktir samhljóða með tilliti til ofnanefndra leiðréttinga. d) Lagabreytingar. Engar tillögur bárust e) Kosning formanns. Tillaga var lögð fram um Stefán B. Sigurðsson sem formann og var hann kosinn til 2ja ára. Rúnar Andrason verður varaformaður. f) Kosning stjórnar Guðbjartur Gissurarson Sjór lýsti því yfir að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs sem gjaldkeri Sjól. Tillaga var lögð fram um Pál Pálsson Sjóve sem gjaldkera. Engar aðrar tillögur komu fram og var hann því sjálfkjörinn. Ólafur Hauksson Sjóve verður varamaður. Tvær tillögur komu fram um ritara, Gylfa Sigurðsson Sjósnæ, og Ragnar Valsson Sjór. Ragnar hlaut 5 atkæði og Gylfi hlaut 8 atkvæði og því Gylfi Sigurðsson rétt kjörin ritari Sjól. Guðrún Gísladóttir Sjósnæ verður varamaður hans Stefán notaði tækifærið og þakkaði Guðbjarti Gissurasyni fyrir gott samstarf í stjórn Sjól undafarið ár. g) Kosning skoðunarmanna. Núverandi skoðunarmaður Magnús Guðmundsson hafði beðist undan því að vera endurkjörinn. Tillaga var lögð fram um Sigfús Karlsson Sjóak og Anton Örn Kærnested Sjór. Engar aðrar tillögur komu fram og voru þeir því sjálfkjörnir. Stefan notaði tækifærið og þakkaði Magnúsi Guðmundssyni fyrir góð störf undafarið ár sem skoðunarmaður Sjól. h) Ákvörðun árgjalds. Samþykkt samhljóða að árgjald verði óbreytt eða 3,5% af brúttóaflaverðmæti á aðalmótum Sjól. i) Önnur mál. 1) Tillaga frá Sjóak sjá fylgiskjal (nr 2) sem fjallar um sveitakeppni á aðalmótum Sjól (gr. 16 í veiðireglum Sjól). Tillagan felur í sér að sveitakeppni er breytt úr kynskiptum sveitum (karlar og konur sér) í blandaðar (ókynskiptar) sveitir en þó gætu félög haldið kynskiptum sveitum ef næg þátttaka væri í mótinu af báðum kynjum. Málið rætt og kom þá breytingartillaga fram frá Matthíasi Sjónes um að hafa sveitakeppni væri ókynskipt án undantekninga. Þórir fagnaði þessari tillögu og taldi þetta leiða til þess að gera þessa íþrótt fjölskylduvænni þar sem þá gætu t.d. hjón skráð sig saman í sveit. Frekari umræður urðu í þessa vegu. Breytingartillagan var borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum gegn 6. 16. grein veiðireglna Sjól breytist því með tilliti til þessa og falla m.a. út þær undantekningar sem gera mátti ef fáir keppendur voru af öðru kyninu. 16. gr veiðireglna Sjól verður því svohljóðandi: 16. gr. Stig og verðlaun. Skipan í sveitir. Við setningu móts ber mótsnefnd skylda til að kynna keppendum hvaða verðlaun eru veitt. Í mótum aðildarfélaga Sjól er keppt um stig til Íslandsmeistara, sbr. 16. 17. gr. Veita skal verðlaun fyrir stærsta fisk móts, stærstu fiska í tegund, flestar tegundir, þrjár aflahæstu sveitir svo og þrjá aflahæstu einstaklinga í karla og kvennaflokki. Að öðru leyti setur hver mótshaldari reglur um verðlaun þau sem keppt er um á mótum aðildarfélaganna. Handhafi farandsverðlauna eða bikars ábyrgist gagnvart mótshaldara að verðlaunin séu á öruggum stað og skili þeim að minnsta kosti mánuði fyrir næstu keppni. Mótstjórn ber að tilnefna og skrá allar sveitir áður en keppni hefst. Sveit skal skipuð fjórum keppendum. Við útreikning í sveitakeppni skal reikna út meðalafla þriggja aflahæstu keppanda í hverri sveit og skal sá meðalafli ráða sætum í sveitakeppni. Deilitalan við útreikning í sveitakeppni skal ávallt vera þrír. Ef veður hamlar veiðum annan daginn er mótsnefnd heimilt að veita verðlaun fyrir eins dags veiði og einnig telst mótið gilt til stiga í Íslandsmeistaratitli. Ákvarðanir mótsnefndar eða dómnefndar um afhendingu verðlauna eru endanlegar. Engu aðildarfélagi Sjól er heimilt að veita verðlaun sem á einhvern hátt stangast á við lög og reglur Sjól. 2) Tekin var umræða um að hafa mótstig ókynskipt svipað og er með bónusstig og bátastig. Stefán skorar á að menn skoði vel áhrif slíkra breytinga, hvort þetta yrði til bóta eða ekki. Það kom fram hjá Pétri að þetta hafi verið rætt hjá þeim í Sjóak en niðurstaðan hjá þeim orðið sú að hafa þetta óbreytt. . 3) Stefán fór yfir málin varðandi samskipin sín við Fiskistofu og ráðuneytið. Samskipti við ráðuneytið hafa orðið erfiðari síðustu ár og hefur gætt á neikvæðri umræða í garð okkar í sjóstönginni sérstaklega varðandi fjármál. Þar kemur fram aukin krafa á því að landsambandið geti veitt upplýsingar um rekstur móta. Stefán lagði fram eftirfarandi tillögu: Aðalfundur Sjól samþykkir að Sjól fái upplýsingar varðandi rekstur móta aðildarfélaganna til að geta gert ráðuneytinu grein fyrir ráðstöfun tekna vegna mótanna. Tillagan borin undir atkvæði samþykkt samhljóða Stefán benti á að það ný setning sé í leyfinu fyrir sumarið 2011, þar sem við erum háð þeim breytingum sem verið er að vinna í hjá ráðuneytinu á lögum um stjórn fiskveiða. Stefán minnti á að ekki sé óeðlilegt að félög eigi varasjóð til að geta haldið allt að 2 léleg mót án þess að lenda í vandræðum. Minnti hann á að tekjur af mótum séu einu ?styrkir? sem félögin hafi ólíkt öðrum íþróttafélögum sem hljóta styrki t.d. frá sveitarfélögum í formi aðstöðu, Íþrótta mannvirki osfrv. Guðmundur Svavarsson og Ólafur Hauksson spurðu út í hvort við ættum að ganga í ÍSÍ en þá værum við talin sem íþróttafélag. 4) Stefán fór inn á virðisaukaskattinn, hans skilningur er að allur sá virðisauki sem félögin innheimti eigi að skila til ríkissjóðs, þrátt fyrir að við séum ekki framtalsskild. Það væru flóknar reglur í þessum málum en jafnframt benti hann á að ábyrgð á þessum málum væri í höndum hvers félags fyrir sig. Stefán ætlar að kanna það hjá öllum félögum hvort að menn standi ekki skil á sköttum þannig að þetta skaði ekki sjóstöngina í heild sinni. Stefán hvetur til þess að ef félög séu ekki með þessi mál á hreinu að ganga strax í það vinna í þeim málum. 5) Matthías spurði út þátttökutilkynningar í mót eins og um var rætt á formannafundinum þ.e. færa lokadag tilkynninga þannig að hann lendi ekki á helgi til að auðvelda undirbúing. Guðbjartur benti á að veðrið gæti spilað inní þ.e. veðurspá hefur áhrif og því lengri tími sem væri til lokatillkynninga gæti orsakað að menn detti út á síðustu stundu. Stefán leggur til að lokadagur tilkynningar á mót sé á miðvikudegi vikunni á undan móti (ca 10 dagar) á undan móti. Var það samþykkt. 6) Spurt var út í hver bæri ábyrgð á því ef veiðimenn kæmu t.d. mjög ölvaðir hvort það væri skipstjóri eða mótshaldari. Skipstjórinn ber höfuðábyrgð en mótshaldari getur líka tekið ákvörðun en bent var að þetta væri mjög fátítt nú orðið að menn mættu ölvaðir um borð. 7) Stefán fór yfir með hvort strandveiðibátar mættu taka þátt í mótum og hefur hann fengið þá skýringu að þeir bátar sem eru í mótum eru í raun flutningsaðilar (flytji keppendur á veiðisvæði) en eru ekki að stunda veiðar sjálfir. Þannig að mót Sjól hafa ekki áhrif á aflamark viðkomandi báta. 8) Rætt var um 12. lið formannsfundar og er það undir hverju félagi komið hvort að innanfélagsmót séu opin öllum á netinu. Lögskráninga á báta er í vinnslu. Leggja ber áherslu á að Sjól sé með tryggingar. Boðun móta, það er undir hverju félagi hvernig það er gert hvort sem rafrænt eða bréfleiðis. 9) Kynning styrktaraðila Pétur benti á ódýra leið t.d í stað auglýsingu á rúllugardínu þá mætti útbúa skjal á tölvutækt form sem væri hægt að varpa upp á skjá. Þetta þarf að gera tímalega og ganga frá samningum við styrktar aðila og að stjórnin skipti með sér verkum í þetta. 10) Elín bað um að félög færu í það að endurskoða sína félagaskrá. Þar sem kostnaður við boðun móta er orðin mikill og kæmi fyrir alltof oft að félagaskráin væri röng. Guðmundur Svavarsson benti á að olíufélög væru oft með afsláttarkjör og það gæti verið sniðugt að kanna hvort Sjól gæti fengið slíkt fyrir félagsmenn sína. 11) Pétur kom inná hvernig tillögur eru unnar, og leggur til að á formannafundi leggi félög inn tillögur og stjórnin vinnur úr þeim og sendi síðan út þær mánuð fyrir aðalfund. Þarna þarf ekki að breyta lögum heldur frekar vinnuferlinu. Fleira ekki gert. Stefán þakkaði góða fundasetu. Fundi slitið kl: 14:40 Reykjavík 5. mars 2011 Páll Pálsson fundarritari. Aðalfundur SJÓL 2010 Aðalfundur Sjól fyrir árið 2009 var haldinn 6. mars 2010 í Turninum í Kópavogi og hófst hann kl 10:00 Mættir voru: Stefán B. Sigurðsson formaður Sjól, Guðmundur Kristinsson gjaldkeri Sjól, Páll Pálsson ritari Sjól, Sjóve Pétur Sigurðsson Sjóak, Sigfús Karlsson Sjóak, Mattías Sveinsson Sjónes, Guðmundur Svavarsson Sjór, Guðbjartur Gissurarson Sjór, Þórir Sveinsson Sjóís, Sigríður Jóhannsdóttir Sjóís, Gylfi Sigurðsson Sjósnæ, Magnús Guðmundsson Sjósnæ, Hörður Hjálmarsson Sjósigl, Gunnar Magnússon Sjósigl Pétur Lárusson Sjóskip. Tveir fulltrúar frá hverju félagi hafa kosningarétt, þannig að á fundinn mættu 13 sem hafa þann rétt. Formaður bauð alla velkomna og setti fundinn, mættir voru fulltrúar frá öllum 8 félögunum. Frá Sjónes Sjóskip og Sjóve kom einn fulltrúi frá hverju félagi en tveir frá hinum. Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum SJÓL a) Kosning fundarstjóra og ritara b) Skýrsla stjórnar c) Endurskoðir reikningar lagðir fram. d) Lagabreytingar. e) Kosning formanns. f) Kosning stjórnar g) Kosning skoðunarmanns. h) Ákvörðun árgjalds. i) Önnur mál. a) Kosninga fundarstjóra og ritara Stefán B. Sigurðsson kosinn fundastjóri og Páll Pálsson ritari. b) Skýrsla stjórnar Stefán fór yfir skýrslu stjórnar fyrir árið 2009 (sjá fylgiskjal nr 1). Umræður urðu um heimasíðu landsambandsins og vildu menn bæta fleiri upplýsingum þar inn t.d segja frá fundum og setja inn fyrr. Einnig voru rædd samskipti Landsambandsins við ráðuneytið. Eins og kemur fram í árskýrslu stjórnar þá virðist alltaf vera erfiðara og erfiðara að fá veiðileyfi. Nokkrar óformlegar athugasemdir komu frá ráðuneyti m.a hvort það fé sem kæmi inn til félaga væri notað í eitthvað annað en til reksturs móta og einnig fyrirspurn um félög sem halda mót utan síns svæðis. Svaraði formaðurinn skrifalega og útskýrði m.a. að sagan sýndi að félag eins og Sjór, sem er elsta félagið, hefði nær alltaf haldið sín mót utan Reykjavíkur og væri því hefðin sterk í þeim efnum. Guðmundur Kristinsson. benti á að það væru fleiri félög sem halda mót annarsstaðar en sinni heimabyggð t.d. Sjóak sem rær frá Dalvík og Grímsey og Ísfirðingar sem róa frá Bolungarvík. Formaðurinn sagði að nauðsynlegt væri að halda góðu sambandi við ráðuneytið og eyða þyrfti öllum röngum sögusögnum og vinna þetta á faglegum nótum. Að öðru leyti er vísað í skýrsluna sem fylgir fundargerðinni. c) Endurskoðir reikningar lagðir fram. Guðmundur fór yfir ársreikninga Landssambandsins fyrir árið 2009. Bent var á að ógreiddur kostnaður kr. 490.000 er vegna reiknikerfisins og er reikningurinn vegna áranna 2007–2008. Hann var ekki greiddur fyrr en í upphafi árs 2009 og má því segja að reksturinn sé mun betri á árinu 2009 ef tekið er tillit til þess. Guðmundur bendir á sum félög greiða mjög seint til Landssambandsins og vill að menn geri bætur á því, jafnvel að setja tímamörk og jafnvel setja vexti eða alla vega einhverjar fastmótaðri reglur. Reikningar Landssambandsins fyrir 2009 voru síðan samþykktir einróma. d) Lagabreytingar. Óskað var eftir afbrigði frá lögum Landssambandsins svo hægt væri að leggja fram tillögu um lagabreytingar en gleymst hafði að senda hana sérstaklega út með fundarboði. Gylfi benti á að þessi lagabreyting hafi verið kynnt og rædd á síðasta aðalfundi og telur því að það hafi í raun verið búið að kynna þessa.lagabreytingu. Voru þessi afbrigði samþykkt, en Þórir sat hjá þar eð hann taldi að slík afbrigði séu óæskileg og vanda beri mjög allar lagabreytinga. Í lagabreytingunni er lagt til að kosnir skuli 2 skoðunarmenn reikninga í stað eins áður. Í þessu felst að 4. liður 7. gr. laga Landssambandsins hljóði þannig "Kosnir skulu 2 skoðunarmenn reikninga til eins árs í senn". Var þessi breyting samþykkt samhljóða en Þórir Sveinsson sat hjá. e) Kosning formanns. Engin kosning formanns fór fram í ár þar sem er kosið var síðast til 2 ára. f) Kosning stjórnar Tillaga var lögð fram um Pál Pálsson Sjóve sem ritara. Engar aðrar tillögur komu fram og var hann því sjálfkjörinn. Tillaga var lögð fram um Guðbjart Gissurarson Sjór sem gjaldkera. Engar aðrar tillögur komu fram og var hann því sjálfkjörinn. Stefan notaði tækifærið og þakkaði Guðmundi Kristinssyni fráfarandi gjaldkera Landssambandsins fyrir vel unnin gjaldkerastörf undafarin ár. g) Kosning skoðunarmanns. Tillaga var lögð fram um Magnús Guðmundson Sjósnæ og Anton Örn Kærnested Sjór Engar aðrar tillögur komu fram og voru þeir því sjálfkjörinir. h) Ákvörðun árgjalds. Tillaga kom frá Sjóak um breytingar á árgjaldi Sjól (sjá fylgiskjal nr. 2). Auk þess sem kemur fram í tillögunni á fylgiskali benti Pétur jafnframt á þetta myndi auðvelda skilgrein gagnvart ráðuneytið um hvað er gert við tekjur sem koma á mótin. Stefán sagði það ekki spurning um hvort heldur hvenær að ráðuneytið krefðist ítarlegra greininga á fjármálum. t.d. hvort fjármagn sé fært á milli móta þegar gengur vel hjá einum en verr hjá öðrum. Stefán taldi að þetta ætti að ræða fagmannlega og það sé betra að við séum með frumhvæði. Guðmundur óttast að þessi breyting gæti leitt til þess að frumkvæði og hvatning mótshaldara hverfi og þeim sem gengur vel eigi að fá að njóta þess en ekki halda uppi skussunum. Hörður benti á að fólki hjá sér lítist bara vel á þetta og þarna kæmi meiri jöfnuður. Þórir benti á að þessi tillaga sé ein róttækasta sem hafi komið fram og að hún muni draga verulega úr áhuga heimamanna við að halda mót. Auk þess teldi hann að tillagan eigi ekki heima innan þessa liðar heldur frekar undir lagabreytingar. Hann telji að þetta muni grafa undan félögum. Síðan lagði hann fram frávísunartillögu, svo hljóðandi: Leggjum til að tillögu Sjóak verði vísað frá þar sem engin lagabreyting var lögð fram frá félaginu innan tilskilins frests eins og áskilið er samkvæmt 6. Grein laga Sjól. Var frávísunartillagan borin strax fram og samþykk 6 með 5 á móti og 2 sátu hjá. Þessi tillaga var því ekki rædd frekar undir þessum lið Tillaga kom frá Sjóak og Sjósnæ um að árgjald verði 3,5% af heildarsöluverðmæti á aðalmótum aðildarfélaganna. Gjalddagi 3 vikum eftir mót hvers félags. Við uppgjör skal leggja fram afrit af sölu og kostnaðarreiknum. Samþykkt samhljóða i) Önnur mál. 1) Stefán fór yfir þáttöku á mótum sumarsins 2009 og benti jafnframt á að stundum hafi heimamenn þurft að víkja fyrir gestum. En að meðatali eru 65% gestir á mótum og gestir eru að skila frá 40–90% aflaverðmæta eða frá 700 þ. upp í 3.500 þ. Þetta sýnir hve mikilvægir gestir mótanna eru. Heildar aflaverðmæti móta væru frá rúmri 1 milj í rúmar 9 milj. Sýnir greinilega hvað tekjur eru mismunandi á milli félaga. 2) Tillögur frá Sjóak um breytingar á veiðireglum: 6gr. Í stað: ?Við mótssetningu skal mótsstjórn á sérfundi með trúnaðarmönnum kynna þeim hlutverk þeirra? Komi: ?Við mótssetningu skal mótsstjórn kynna trúnaðarmönnum hlutverk þeirra? nokkrar umræður urðu en síðan var tillagan samþykkt einróma. 7gr. C liður: Í stað: "Að sjá um að keppendur dragi stæði við borðstokk þannig að sá veiðimaður sem dregur lægsta númerið verði fremstur (næst stefni) og síðan koll af kolli. Ef auka veiðimaður kemur á bátinn seinni daginn skal trúnaðarmaður útbúa miða með einu númeri hærra en fjöldi keppenda sem fyrir eru á bátnum segir til um og láta aukaveiðimanninn draga númer. Sá taki stæði við borðstokkinn eins og númer hans segir til um en aðrir keppendur færist í stæði samsvarandi." Komi: "Að sjá til þess að keppendur raði sér á borðstokk í samræmi við mótsgögn, þannig að sá veiðimaður sem efstur er á bátalista í mótsgögnum verði fremstur (næst stefni) og síðan koll af kolli. Ef veiðimaður sem ekki er á mótsskýrslu kemur á bátinn skal trúnaðarmaður útbúa miða með einu númeri hærra en fjöldi keppenda sem fyrir eru á bátnum segir til um og láta veiðimanninn draga númer. Sá taki stæði við borðstokkinn eins og númer hans segir til um en aðrir keppendur færist í stæði samsvarandi." Nokkrar umræður urðu um þessa tillögu og kom m.a breytinga tillaga frá Sjósnæ sem gekk styttra en tillaga Sjóak. Tillaga Sjóak var borin upp og samþykkt með 6 atk. gegn 5 atk og kom tillaga Sjósnæ því ekki til atkvæðagreiðslu. 9 gr. Miklar umræður urðu um þessa grein m.a. ójafnræði, aðstoðarmenn og skipstjóra sem vilja vera meira með, of stífar reglur geti fælt nýliða frá en tillaga Sjóak er svo hljóðandi: "Skipsverji eða annar keppandi má aðstoða keppendur við að ganga frá afla, skera beitu, beita öngul, háfa eða færa í, innbyrða og losa fiska af önglum keppenda, greiða úr flækjum sem á færin eða hjólin kunna að koma, en annars ber keppanda einum að meðhöndla stöngina og veiðarfærin. Trúnaðar-maður skal sjá til þess að allir veiðimenn hafi sama aðgang að aðstoð um borð." Fram kom breytingartillaga frá Guðbjarti og Matthíasi sem gekk heldur styttra en hún hljóðar svo "Skipsverji eða annar keppandi má ganga frá afla og skera beitu. Einnig háfa, færa í, innbyrða og losa fiska af önglum þeirra keppenda sem í vandræðum lenda, greiða úr flækjum sem á færin eða hjólin kunna að koma, en annars ber keppanda einum að meðhöndla stöngina og veiðarfærin. Trúnaðarmaður skal sjá til þess að allir veiðimenn hafi sem jafnastan aðgang að aðstoð um borð" Fyrst var tillaga Sjóak borin upp en hún var felld með 7 atkv. gegn 6 atkv. Þá var borin upp tillaga Guðbjarts og Matthíasar og var hún samþykkt samhljóða en nokkrir sátu hjá. 3) Tillaga frá Sjósnæ um að á mótum verði hægt að tefla fram blönduðum sveitum karla og kvenna. Ekki var hægt að greiða atkvæði um þessa tillögu þar sem hún var of seint fram komin en umræða leyfð. Þóri lýst vel á tillöguna þar sem oft eru fáar konur og oft ein sveit þannig að þar er ekki að neinu að keppa. Aðrir töldu að þetta þyrfti að skoða vel fyrir næsta fund. 4) Guðmundur Kristinsson tók upp samskipti við ráðuneyti varðandi málefni Landssambandsins. Taldi hann að aðilar sem ekki hefðu með málið að gera væru að því og vildi að fundurinn áminnti þá. Vísaði hann þar m.a. í umræðu á formannafundi í nóvember síðastliðnum. Þóri kvaðst þykja miður að Guðmundur skuli skilja málið þannig og tala með þessum orðum. Hann kvaðst eingöngu bera hag Landssambandsins fyrir brjósti þegar málefni þess bæru á góma í ráðuneytinu. Fundurinn ítrekar að einungis formaður og eða stjórn Sjól tali máli Landsambandsins við ráðuneyti og fleirri aðila. Guðmudur þakkaði Stefáni fyrir hvernig hann hefur haldið á málum fyrir Sjól og vill meina að það hafi bjargað miklu. 5) Þórir sagði frá að EFSA héldi Evrópumót á Dalvík 5 daga mót 9. ? 14. maí nk. Kostar um kr. 100 þús. á mann. Komnir séu um 125 keppendur frá 11 löndum en þeir hafi báta fyrir fleiri keppendur. Er þetta eitt fjölmennasta mót sem hefur verið haldið hér á landi. 6) Magnús tilkynnti flutning á dagsetningu innanfélagsmóts Sjósnæ frá 1. maí til 24. apríl. Verið geti að Sjóve flýti sínu móti líka fram í apríl. Stefan ítrekar að láta sig vita strax um allar breytingar svo hægt sé að láta Fiskistofu vita. Pétur frá Sjóskip sagði frá því að þeir væru í vandræðum með að fá menn til að taka að sér stjórnarstörf og verið gæti að þeir gætu ekki haldið sitt mót í sumar. 7) Pétur lagði fram tillögu vegna ársreikninga. Þ.e. að "formaður Sjól fái aðgang af ársreikningum félaganna". Ástæða væri til þess að formaður Sjól hafi aðgang að þeim til að geta geti útskýrt fyrir ráðuneytinu hvernig félögin reki mótin. Nokkrar umræður voru m.a. kom fram hjá Stefáni að formaður Sjól myndi ekki gefa upp upplýsingar úr ársreikningi nema með samþykki viðkomandi félags. Guðmundur og Þórir benda á að þetta standist ekki lög þeirra félaga og þess vegna eru þeir á móti. Auk þess komi ráðuneytinu ekki við hvað standi í ársreikningum félaganna. Tillagan var borin upp og samþykkt með 7 atkv. gegn 6 akv á móti. 8) Mattías bendir á að færa inní reglur hvað gagnagrunnur á að gera. Einnig vill hann benda félögum á því að sé veiðandi skipstjóri á mótum að þá komi aðstoðarmaður um borð. Þá þurfi að athuga betur með notkun tékklista og birtingu netfanga formanna aðildarfélaga á heimasíðu Sjól. 9) Þórir vill benda á að skoða þurfi vel hvort að senda eigi út tilkynningar um mótin eingöngu rafrænt. 10) Páli fannst leiðinlegt að tillaga frá Sjóak um breytingar á árgjaldi skildi enda með þeim hætti sem raun var og menn gætu ekki rætt og skoðað málin betur. Pétur vill að tillagu þeirra verði skoðuð betur og jafnvel að stjórnin setji nefnd um þessi mál. Þórir benti á að tillagan frá Sjósnæ hefði einmitt gengið út á að þeim félögum sem ættu í erfiðleikum yrði hjálpað. Fleira ekki gert og þakkaði Stefán fundarmönnum góða fundasetu. Fundi slitið kl: 16:00 Reykjavík 6. mars 2010 Páll Pálsson fundarritari. Aðalfundur SJÓL 2009 Aðalfundur Sjól fyrir árið 2008 var haldinn laugardaginn 21. mars 2009. Fundarstaður var Höllin, félagsheimili Sjór, og hófst hann kl.10,00. Á fundinn mættu: Stjórnarmenn án atkvæðisréttar: Stefán B. Sigurðsson, formaður og Guðmundur Kristinsson, gjaldkeri. Frá aðildarfélögum Sjól, með atkvæðisrétt: Sigríður Jóhannsdóttir, Sjóís, Þórir Sveinsson, Sjóís, Guðbjartur G. Gissurarson, Sjór, Guðmundur Svavarsson, Sjór, Sigurður M. Jónsson, Sjóskip, Matthías Sveinsson, Sjónes, Páll Pálsson, Sjóve, Ólafur P. Hauksson, Sjóve, Hörður Þ. Hjálmarsson, Sjósigl, Ólafur Bjarnason, Sjósigl, Pétur Sigurðsson, Sjóak, Gunnar Rúnarsson, Sjóak, Sigurður A. Guðmundsson, Sjósnæ, Magnús Guðmundsson, Sjósnæ. Tveir fulltrúar frá hverju félagi hafa kosningarétt, þannig að á fundinn mættu 14 sem þann rétt höfðu. Boðuð forföll: Gylfi Sigurðsson, ritari Sjól. Formaður setti fundinn, bauð fundarmenn velkomna og kynnti dagkrá fundarins. 1. Kosning fundarstjóra og ritara: Stungið var upp á Stefáni B. Sigurðssyni sem fundarstjóra og Magnúsi Guðmundssyni sem fundarritara. Fleiri tillögur bárust ekki og voru þeir því sjálfkjörnir. 2. Skýrsla stjórnar: Formaður flutti skýrslu stjórnar. Ræddi hann um störf stjórnarinnar almennt, mót sumarsins, samskipti við Fiskistofu og Sjávarútvegsráðuneyti. Taldi hann þau samskipti nú komin í góðan farveg en brýndi fyrir mönnum nauðsyn þess að félögin stæðu við sinn hlut af samkomulagi við Fiskistofu um upplýsingar um mót sumarsins. Ýmsir aðilar eru farnir að hnýta í ráðuneytið vegna veiðileyfi til handa Sjól. Í viðræðum við ráðuneytið lagði formaður áherslu á að eini styrkur sem þessi íþrótt fengi frá hinu opinbera væri þessi heimild til veiða. Taldi hann að þessi röksemd og einnig það, að félögin hafi staðið við sitt á árinu, hafi vegið þungt í því að óbreytt veiðiheimild fékkst fyrir árið 2009. Að öðru leyti er vísað í skýrsluna. 3. Ársreikningur 2008: Gjaldkeri lagði fram endurskoðaðan ársreikning fyrir árið 2008. Hagnaður ársins nam kr. 419.775,- og óráðstafað eigið fé í árslok kr. 607.698,-. Orðið var gefið laust um skýrslu stjórnar og ársreikning. Nokkrar umræður urðu um skýrslu stjórnar og reikninga en að þeim loknum var skýrslan og ársreikningur samþykkt samhljóða. 4. Lagabreytingar: Engar tillögur um lagabreytingar lágu fyrir fundinum. 5. Kosning formanns til tveggja ára: Stungið var upp á Stefáni B. Sigurðssyni og var það samþykkt samhljóða. 6. Kosning ritara og gjaldkera til eins árs: Í embætti ritara komu fram uppástungur um Gylfa Sigurðsson, Sjósnæ og Pál Pálsson, Sjóve. Kosið var milli þeirra og hlaut Páll 11 atkvæði en Gylfi 3. Er Páll því réttkjörinn ritari Sjól, starfsárið 2009–2010. Í embætti gjaldkera var Guðmundur Kristinsson, Sjór, sjálfkjörinn, þar sem Fleiri uppástungur bárust ekki. 7. Kosning skoðunarmanna: Endurkjörnir voru Magnús Guðmundsson, Sjósnæ og Anton Örn Kærnested, Sjór. 8. Ákvörðun árgjalds: Stefán kynnti hugmynd sem fram hefði komið um að lækka árgjald í 1,75%. Pétur lagði til að árgjald yrði óbreytt 3,5% og færði rök fyrir því. Eftir nokkrar umræður var samþykkt að árgjaldið yrði óbreytt. 9. Önnur mál: 9.1)Tillögur frá Sjóak um breytingar á veiðireglum. Lagt er til að11. grein sé felld út að mestu leiti og ný grein sett í staðin með eftirfarandi hætti. Liðir a. ? e. í núgildandi reglum um útdrátt á báta falli niður og í stað þeirra koma nýir liðir a. ? h. (sjá hér að neðan) Liðir f. og g. í eldri reglum verða óbreyttir en verða númer i. og j. Tillaga Sjóak var svohljóðandi: Nota skal veiðigrunn Sjól við útdrátt á báta fyrir mót, eftirfarandi reglur skulu gilda: a. Skrá skal í veiðigrunn nöfn skipstjóra, nöfn, umdæmisnúmer og skipaskrárnúmer báta, einnig fjölda veiðimanna í áhöfn. b. Skrá skal í veiðigrunn hvaða skipstjórar eru veiðandi. c. Skrá skal í veiðigrunn nafn og sveitarnúmer keppenda. d. Skrá skal í veiðigrunn hvaða keppendur hafa verið tilnefndir til trúnaðarstarfa og skulu þeir aldrei vera færri en skráðir bátar í mótinu. e. Veiðigrunnur skal raða keppendum af handahófi niður á skráða báta í mótinu. f. Veiðigrunnur skal raða skráðum trúnaðarmönnum niður á skráða báta í mótinu, einum á hvern bát. g. Veiðigrunnur skal raða veiðandi skipstjórum niður á þá báta sem þeir eru skipstjórar á. h. Veiðigrunni er óheimilt að raða veiðimönnum í sömu sveit saman á bát. Nokkrar umræður urðu um þessa tillögu og tóku eftirtaldir til máls: Guðmundur Kristinson, Stefán B. Sigurðsson, Ólafur Hauksson, Guðmundur Svavarsson, Sigurður, Páll Pálsson, Pétur Sigurðsson, Þórir Sveinsson, Matthías Sveinsson. Þórir lagði fram tillögu um nýjan lið sem yrði nr k) ?Heimilt er að draga veiðimenn á báta fyrir sitt hvorn veiðidag samkvæmt e ? h liðum þessara greinar. Pétur bætti um betur og lagði til að við lið k) yrði bætt ?enda sé þess getið í mótsboði?. Þá tóku til máls Guðbjartur og Pétur. Tillaga Þóris/Péturs var samþykkt með 11 atkv. 2 á móti og einn sat hjá. Þá lagði Páll fram tillögu um nýjan lið sem yrði l liður greinarinnar ?Ef gagnagrunnur liggur niðri við útdrátt á báta skal fara eftir þeim reglum sem voru í gildi fyrir veiðiárið 2008. Þetta skal þó einungis gert í samráði við stjórn Sjól.? Þetta var samþykkt. Samþykkt var einnig að víxla f) og e) lið greinarinnar. Tillaga Sjóak með áorðnum breytingum var síðan samþykkt samhljóða. 16. gr. Stig og verðlaun. Skipan í sveitir. Í lok annarrar setningar greinarinnar breytt í 17. gr. til samræmis við umfjöllunarefni greinanna. Samþykkt samhljóða. 17. gr. Stigagjöf til Íslandsmeistara. Kaflanum um mótsstig breytt þannig að gefin eru mótsstig fyrir hvorn veiðidag fyrir sig og eru þau helminguð frá núverandi stigum. Greinin helst óbreytt að öðru leyti og verði þannig: Mótsstig: Aflahæsti keppandi í magni, karl og kona, í móti í kílóum talið fær 75 stig fyrir hvorn dag sem veitt er. Annar aflahæsti karlinn og konan fá 70 stig fyrir hvorn dag sem veitt er, þriðji aflahæsti karlinn og konan fá 65 stig fyrir hvorn dag sem veitt er o.s.frv. Frá þriðja sæti og niður skal talið niður í töluna 26 með tveggja stiga mun milli keppenda. Eftir það er eins stigs munur milli keppenda, þannig að næsti keppandi fær 25 stig og síðan koll af kolli niður í 15 stig sem er lágmarks stigagjöf fyrir eins dags veiði og fær enginn lægri tölu um það fyrir daginn. Til máls tóku: Páll, sem spurði um áhrif þess ef annar veiðidagurinn félli niður. Þórir, sem fannst vanta betri rökstuðning fyrir breytingum skv. tillögunni. Pétur, sem gerði grein fyrir hugsuninni að baki fyrirhuguðum breytingum og Guðmundur K. sem spurði um skiptingu á veiðiplássum á bátunum. Páll lagði fram tillögu um stigagjöf ef veitt er einungis annan daginn þannig að í lok kaflans um mótsstig komi ?Ef veður hamlar veiðum annan daginn skal tvöfalda stigagjöf, bæði mótsstig og bátastig.? Samþykkt. Tillaga Sjóak með áorðnum breytingum samþykkt samhljóða. Ný grein19. gr. Tékklisti. Hér er lögð til ný grein , sem auðveldað getur mótshöldurum framkvæmd og samræmingu mótshalds. Nokkrar umræður urðu um þessa tillögu og kom þar m.a. fram að nokkur félög hafa notað tékklista á undanförnum árum. Efasemdir komu fram um réttmæti þess að hafa tékklista í veiðireglum Sjól. Tillagan samþykkt samhljóða. 21. grein. Skil veiðiskýrslna. Fyrsta setning greinarinnar fellur niður og ný kemur í hennar stað og verður þannig: ? Reiknimeistarar aðildarfélaganna skulu með innskráningu í gagnagrunn Sjól hafa aðgang að veiðiskýrslum aðildarfélaganna?. Að öðru leyti helst 21. gr. óbreytt. Samþykkt samhljóða. 9.2)Tillögur frá Sjósigl um breytingar á veiðireglum: Breyting við 9. gr. : Í stað orðsins ?hjálparmenn? komi orðin ?Aðstoð um borð?. Út falli orðin ?beita öngul, háfa eða færa í, innbyrða og losa fisk af önglum keppenda?. Umræður um þessa breytingu urðu þó nokkrar og voru skoðanir um hana skiptar. Páll Pálsson lagði fram breytingartillögu um að við greinina bætist ?Heimilt er þó að innbyrða stórfisk?. Tillaga Sjósigl með áorðnum breytingum samþykkt með 10 atkvæðum gegn 4. Breyting við 16. gr.: Út falli orðin: ?þriggja aflahæstu keppenda í hverri sveit og skal sá meðalafli ráða sætum í sveitakeppni. Deilitalan við útreikning í sveitakeppni skal ávallt vera þrír?. Í staðinn komi orðin: ?með fjölda þeirra sem í sveitinni eru?.Samhlið þessu er lögð til breyting við 3. gr. heimilaðra undantekninga. Í stað orðanna ?þriggja efstu? komi ?fjölda þeirra sem í sveitinni eru?. Fellt með 8 atkvæðum gegn 2. 9.3) Þórir vakti athygli á að breyta þyrfti ártali í veiðireglum Sjól úr 2008 í 2009 9.4) Drög að tékklista fyrir undirbúning veiðimóta voru lögð fram til kynningar. 9.5) Ýmsar ábendingar:
9.6) Skoðunarmenn reikninga:
9.7) Stefán gerði grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á gagnagrunni reikniforrits og áætluðum kostnaði við það. Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15,40. Aðalfundur Sjól 2008 Dagsetning: 8. mars 2008 Staður: Akranes Viðstaddir: Stefán B. Sigurðsson, formaður Sjól, Gylfi Sigurðsson, ritari Sjól, Sjósnæ, Guðmundur Kristinsson, gjaldkeri Sjól, Pétur Sigurðsson, Sjóak, Hörður Hjálmarsson, Sjósigl, Þórir Sveinsson, Sjóís, Pétur Lárusson, Sjóskip, Sigfús Karlsson, Sjóak, Páll Pálsson, Sjóve, Ólafur Hauksson, Sjóve, Guðbjartur Gissurarson, Sjór, Guðmundur Svavarsson, Sjór, Sigurður Arnfjörð Guðmundsson, Sjósnæ, Sigurður Jónsson, Sjóskip, Sigríður Kjartansdóttir, Sjóís. Tveir fulltrúar frá hverju félagi hafa kosningarétt. Boðuð forföll: Fulltrúar Sjónes. 1. Fundarsetning Formaður setti fundinn, bauð fundarmenn velkomna og kynnti dagskrá fundarins. Fundarstjóri var kjörinn Stefán B. Sigurðsson Fundarritari var kjörinn Gylfi Sigurðsson. 2. Skýrsla stjórnar Formaður flutti skýrslu stjórnar og er hún í fylgiriti með þessari fundargerð. Engar athugasemdir voru gerðar við skýrslu stjórnar. 3.Reikningar Gjaldkeri lagði fram endurskoðaða reikninga SJÓL og voru þeir samþykktir samhljóða. 4.Lagabreytingar Óskað var eftir afbrigði frá lögum svo hægt væri að leggja fram tillögu um lagabreytingar en tillöguna gleymdist að senda út með fundarboði. Var það samþykkt samhljóða. Lagt var fram að 3. liður 10. gr. laga Sjól breytist þannig að aftan við hana bætist ?til aðildarfélaganna? Var þessi breyting samþykkt samhljóða. 5. Kosning ritara og gjaldkera Tillaga var lögð fram um Gylfa Sigurðsson, Sjósnæ sem ritara. Engar aðrar tillögur komu fram og var hann því sjálfkjörinn. Tillaga var lögð fram um Guðmund Kristinsson, Sjór sem gjaldkera. Engar aðrar tillögur komu fram og var hann því sjálfkjörinn. 6. Kosning skoðunarmanna Tillaga var lögð fram um Magnús Guðmundsson, Sjósnæ og Anton Örn Kærnested, Sjór. Engar aðrar tillögur komu fram og voru þeir því sjálfkjörnir. 7. Ákvörðun árgjalds Tillaga var lögð fram um óbreytt árgjald, 3,5% af aflaverðmæti og var hún samþykkt samhljóða. 8. Önnur mál a) Pétur Sigurðsson gerði athugasemd um lista yfir metfiska. Rauðspretta sem Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir, Sjóak veiddi skyldi skráð óbreytt skv. upphaflegri vigt og veiðiskýrslu viðkomandi móts og skildi sú regla gilda um alla metfiska. Vað það samþykkt með 10 atkvæðum gegn 2. b) Þórir Sveinsson, Sjóís kynnti tillögur frá Sjóís um breytingar á veiðireglum Sjól. Tillögurnar snéru að 1. gr. 10. gr. með það í huga að gera opnu mótin fjölskylduvænni og 16. gr til að auka vægi tegundaveiði. Eftir umræður voru tillögurnar varðandi 1. og 10. gr felldar, voru 5 með en 7 voru á móti. Varðandi 16. gr var lagt til að bónusstig hækkuðu úr 5 stigum í 10 fyrir stærstu fiska í tegund og stærsta fisk móts og úr 10 í 15 stig fyrir flestar tegundir. Eftir nokkra umræðu kom fram breytingartillaga frá Páli Pálssyni Sjóve um að bónusstig skyldu verða óbreytt þ.e. 5 stig fyrir stærstu fiska í tegund og stærsta fisk móts en 5 stig bættust við ef stærsti fiskur er jafnframt landsmet og 15 stig yrðu gefin fyrir flestar tegundir. Þessi tillaga var samþykkt með 7 atkvæðum en 5 voru á móti. c) Pétur Sigurðsson kynnti tillögur Sjóak um breytingar á veiðireglum. Inn komi ný 1. gr. og breytingar á gr. 10, 11, 15, 16, 17. 1. gr. Keppendur. (ný grein) Allir félagsmenn aðildarfélaga Sjól 18 ára og eldri svo og þeir sem verða 18 ára á keppnisári geta orðið keppendur á mótum aðildarfélaganna. Félagsmenn sem verða 16 ára á keppnisári svo og 17 ára keppendur hafa einnig þátttökurétt með skriflegu samþykki forráðamanna sinna. Aðildarfélögum er heimilt að veita keppendum utan félaga, innlendum eða erlendum þátttökurétt í sínu móti, en eru ekki skuldbundin til þess. Samþykkt með 11 atkvæðum, 2 sátu hjá. 11. gr. Útdráttur á báta. (var 10. gr.) Við útdrátt á báta fyrir mót skulu gilda eftirfarandi reglur. a. Nöfn báta, númer báta og keppenda skulu rituð hvert fyrir sig á miða og þeir settir í þrjá potta. Þó skal fyrst taka til hliðar númer keppenda sem valist hafa til trúnaðarmannastarfa og setja í sér pott, einnig skal taka númer veiðandi skipstjóra frá þar sem þeir eru undanþegnir drætti á báta og raðast því sjálfkrafa niður á sína báta. ... Samþykkt með 10 atkvæðum, 3 sátu hjá. 12. gr. Gerð báta. (var 11. gr.) Leitast skal við að nota báta af sömu stærð með sem jafnastan ganghraða. Verði því ekki við komið er mótshaldara heimilt að takmarka ganghraða veiðibáta á eigin móti. Tilkynna skal það á mótssetningu. Ganghraði skal þó aldrei vera hærri en 17 sjómílur. Trúnaðarmenn skulu koma þeim tilmælum til skipstjóra og sjá til þess að þau séu virt. Samþykkt með 9 atkvæðum, 4 sátu hjá. 16. Stig og verðlaun. Skipan í sveitir. (var 15. gr.) ... Frá þessu er þó heimilt að gera eftirfarandi undantekningar. 1. Ef fjöldi keppenda í karla eða kvennaflokki er níu eða færri, hefur mótshaldari heimild til að skipta upp 4 manna sveit sem skráð hefur verið í mótið, til að sveitakeppni geti farið fram og enginn veiðimaður veiði stakur. Ef sveit er skipt upp, skal það gert með þeim hætti að sá veiðimaður sem skráður er inn númer 4 í sveitinni sem skipt er upp, færist yfir í aðra sveit samkvæmt ákvörðun mótsstjórnar. 2. Ef keppendur eru stakir eða deilitalan gengur ekki upp er mótsstjórn heimilt að raða þeim keppendum sem útaf standa í þriggja manna sveitir, leitast skal við að þriggja manna sveitir séu sem fæstar og aldrei fleiri en þrjár í hverjum flokki. 3. Sömu reiknireglur gilda um þriggja og fjögurra manna sveitir þ.e.a.s. meðalafli þriggja efstu ræður sætum í sveitakeppni. ... Samþykkt samhljóða. 17. gr. Stigagjöf til Íslandsmeistara (var 16. gr.) Þrenns konar stig eru gefin til Íslandsmeistara; mótsstig, bátastig og bónusstig. Mótsstig: Aflahæsti keppandi í magni, karl og kona, í móti í kílóum talið fær 150 stig. Annar aflahæsti karlinn og konan fá 140 stig, þriðji aflahæsti karlinn og konan fá 130 stig o.s.frv. Frá þriðja sæti og niður skal talið niður í töluna 50 með 5 stiga mun á milli keppenda. Eftir það er tveggja stiga munur á milli keppenda, þannig að næsti keppandi fær 48 stig og síðan koll af kolli niður í 30 stig sem er lámarksstigagjöf og fær enginn lægri tölu en það. Bátastig: Aflahæsti keppandi á hverjum báti fær 50 stig fyrir hvorn dag sem veitt er, annar aflahæsti 43 stig, þriðji aflahæsti 36 stig og 29 stig þeir sem neðar eru á fjögurra manna bátum eða stærri. Tillögur um mótsstig voru samþykktar með 11 atkvæðum, 2 sátu hjá. Tillögur um bátastig voru samþykktar samhljóða. 18. gr. Útreikningur bátsafla (var 18. gr.) a. Ætíð skal deila í dagsafla báts með fjölda stanga veiðimanna um borð. b. Við útreikning bátsafla og bátastiga skal reikna hvorn dag út sérstaklega. c. Mæti keppandi ekki til báts skal hann ekki tekinn með í útreikninga bátsins þann dag. Samþykkt samhljóða. d) Tillaga kom frá Sjór um að fella niður mótsgjöld skv. rökstuðningi. Tillagan var felld. 3 voru með en 8 voru á móti. e) Þórir kynnti bréf frá Efsa Ísland um samstarf um mót á Norðurlandi árið 2010. Ákveðið var að vísa beiðninni til einstakra félaga. f) Guðmundur Kristinsson, Sjór varpaði fram hugmynd um að halda sérstakt lokahóf með verðlaunaafhendingu Sjól. Hugmyndin hlaut ekki hljómgrunn og var ekki tekin til atkvæðagreiðslu. Fundi lauk kl. 14.45 Fundarritari: Gylfi Sigurðsson Aðalfundur SJÓL 2007 Dagsetning: Laugardaginn 24. mars. 2007, kl. 10.00. Haldinn: Hótel Óðinsvé Þórsgötu 1 Reykjavík. Viðstaddir: Elínborg Bernódusdóttir fulltrúi Sjóve, Guðmundur Kristinsson fulltrúi Sjór, Guðmundur Svavarsson fulltrúi Sjór, Hörður Þ. Hjálmarsson fulltrúi Sjósigl, Ólafur Bjarnason fulltrúi Sjósigl, Jón Þór Þorgeirsson fulltrúi Sjóskip, Sigurður M. Jónsson fulltrúi Sjóskip, Magnús Guðmundsson fulltrúi Sjósnæ, Gylfi Sigurðsson fulltrúi Sjósnæ, Matthías Sveinsson fulltrúi Sjónes, Pétur Sigurðsson fulltrúi Sjóak, Stefán Baldvin Sigurðsson fulltrúi Sjóak, Hávarður Bernharðsson fulltrúi Sjóís, og Þórir Sveinsson fulltrúi Sjóís. Formaður Sjól, Pétur Sigurðsson Sjóak setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Lögð var fram skýrsla stjórnar Sjól fyrir starfsárið 2006–2007, ársreikningar ársins 2006, tillaga að árgjöldum fyrir árið 2007, og tillaga að verðlaunum vegna Íslandsmeistara Sjól fyrir árið 2007 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. a. Kosning fundarstjóra og fundarritara. b. Skýrsla stjórnar. c. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. d. Lagabreytingar. e. Kosning formanns. f. Kostning stjórnar. g. Kostning skoðunarmanns. h. Ákvörðun ársgjald. 2. Önnur mál. a. Tillögur að breytingum á veiðireglur Sjól. b. Verðlaun til Íslandsmeistara Sjól c. Annað. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. a. Kosning fundarstjóra og fundarritara. Pétur Sigurðsson kosinn fundarstjóri og Guðmundur Kristinsson fundarritari. b. Skýrsla stjórnar. Pétur Sigurðsson, formaður Sjól, lagði fram og las upp skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár. Í skýrslunni var m.a. greint frá skipan stjórnar og nefnda, starfi stjórnarinnar og frá formannafundi í Reykjavík þann 8. október 2006, frá heimild til að veiða og skilyrðum sjávarútvegsráðuneytisins fyrir heimildinni, frá félagsstarfinu og mótum sumarsins, frá Íslandsmeisturum Sjól í karla- og kvennaflokki og frá innanfélagsmótum. Fram kom að á síðastliðnu sumri tóku 156 einstaklingar, 28 konur og 128 karlar, þátt í mótum Sjól sumarið 2006 og veiddust rúm 150 tonn (84.944fiska) á móti 162 tonnum (88.244fiska) árið áður. Róið var á 91 bát í átta mótum og tóku 325 keppendur þátt en 393 keppendur árið áður. Skýrslan var samþykkt samhljóða. c. Reikningar liðins starfsárs. Matthías Sveinsson gjaldkeri Sjól, lagði fram og skýrði reikninga ársins 2006. Helstu niðurstöðutölur rekstrarreiknings voru að tekjur námu 777.852.00 kr. en útgjöld 630.615.00 kr. og var því hagnaður upp á kr. 147.237.00 kr. Helstu niðurstöðutölur efnahagsreiknings voru að handbært fé í árslok nam 289.407.00 kr., skuldir -34.284.00 kr., eða samtals 255.123.00 kr. eigið fé. Framlagðir reikningar voru undirritaðir af Matthíasi Sveinssyni gjaldkera og Magnúsi Guðmundssyni skoðunarmanni Sjól. Reikningarnir voru bornir undir atkvæði. Óskaði þá Gylfi Sigurðsson Sjósnæ upplýsingar um nokkra liði varðandi Efnahagsreikninginn. Matthías Sveinsson gjaldkeri og Pétur Sigurðsson formaður Skýrðu út reikninginn og var Gylfi ánægður með þá skýringu. Voru þá reikningarnir bornir undir atkvæði og samþykktir einróma. d. Lagabreytingar. Engar lagabreytingar lágu fyrir. e. Kosning stjórnar. Í stjórn voru kosnir: Stefán B Sigurðsson Sjóak sem formaður og Gylfi Sigurðsson Sjósnæ sem ritari, og Guðmundur Kristinsson Sjór sem gjaldkeri Tvær tillögur komu fram um ritara, engin kostning fór fram og óskaði Guðmundur Kristinsson Gylfa til hamingju með ritara starfið. Til vara voru kosnir: Stjórnir Sjóak, Sjór og Sjósnæ tilnefni varamenn sína. Skoðunarmaður ársreikninga var kosinn Magnús Guðmundsson Sjósnæ. f. Ákvörðun árgjalds. Stjórn Sjól lagði til að árgjald 2007 til landssambandsins verði 3,5% af brúttósöluverðmæti á aðalmótum aðildarfélaganna, hvort sem um er að ræða afla sem er vigtaður í mótinu, undirmál sem ekki kemur á vigt eða annan afla sem aflað er af bátum sem róa á vegum viðkomandi félags á móthelgum. Ef hluti aflaverðmætis er notaður til fjármögnunar á verðlaunum á lokahófi Sjól, skal sú upphæð dregin frá brúttóaflaverðmætinu áður en árgjaldið er reiknað. Aðildarfélög skulu gera skil á árgjaldi í síðasta lagi 4 vikum eftir mótshelgi. Menn ræddu um þessa tillögu að lokum var hún borin upp og samþykkt samhljóða 2 Önnur mál. Tillögur að breytingum á veiðireglum Sjól. Fyrir fundinum lágu tvær tillögur frá Sjór. Fyrri tillagan er svohljóðandi Þegar munur er á fiskum sömu tegunda minni en 25 gr.milli aðila skulu keppendur eða fulltrúar þeirra kallaðir til. Þessi tillaga var mikið rædd, töldu menn að best væri að vigta með 2 auka stöfum einnig kom fram hvort ekki ætti að útbúa vigtalýsingu sem menn gætu farið eftir. Hin tillagan var um veiðitíma á sjó. Taldi Pétur Sigurðsson Sjóak að ekki ætti að breyta veiði tíma á sjó, Þórir Sveinsson Sjóís taldi að það ætti að skipa vinnu hóp til að fara yfir þessar mál og stjórnin leggi fram tillögur fyrir næsta aðalfund enda eru þessar tillögur ekki löglega fram bornar, og ætti að vísa þeim frá .Var það samþykkt. Íslandsmeistaraverðlaun Sjól 2007 Stjórn Sjól lagði fram tilögu að Íslandsmeistaraverðlaunum. Var hún rædd vel og lengi. Þórir Sveinsson Sjóís ræddi hvort hægt væri að breyta tilögunni. Gylfi Sigurðsson Sjósnæ vildi fresta henni og taka hana upp á næsta aðalfundi að lokum var tillagan breytt og er hún svohljóðandi. ?Aðalfundur Sjól hvetur eindregið aðildarfélög sín til að leggja fram sem samsvarar 50.000 kr. Til verðlaunaafhendingar á lokahófi Sjól 2007. Framlagið getur verið t.d beint peningaframlag, gjafabréf frá styrktaraðilum, samningur við aðila um kaup á gjafabréfum. Aðildarfélög skulu skila inn til stjórnar Sjól tillögum um hvernig þau ætla að standa aðverðlaunum eigi síðar en 1. Maí, þannig að hægt sé að auglýsa styrktaraðila strax frá fyrsta móti. Á lokahófi Sjól skal veita viðurkenningar fyrir eftirfarandi, Íslandsmeistari karla og kvenna 1. 2.og 3. sæti. Aflahæsti einstaklingur, stærsti fiskur og flestar tegundir 1. 2. og 3. sæti. Stærsti fiskur sumarsins í hverri tegund 1. sæti. Landsmet einstakir fiskar 1. sæti.? Tillagan var borin upp og var hún samþykkt. Annað: Stefán Baldvin Sigurðsson nýkosinn formaður þakkaði traustið sem honum var sínt og bennti mönnum á að huga vel að heimasíðunni, talaði hann einnig um heimsókn blaðamanna frá Dannmörku og hugsamlega þáttöku sjóstangaveiðimanna frá norðulöndum á sjóstangaveiði í sumar. Þórir Sveinsson Sjóís ræddi um metskrá og taldi að við ættum að halda utan um hana og koma metfiskum á alþjóðaskrá. Í lok fundarins þakkaði Pétur Sigurðsson Sjóak fráfarandi formaður Sjól, fráfarandi stjórn fyrir gott starf á liðnu ári og bauð nýja stjórn velkomna til starfa. Stefán Baldvin Sigurðsson, nýkjörinn formaður Sjól, þakkaði fyrir hönd nýrrar stjórnar og þakkaði fráfarandi gjaldkera Matthíasi Sveinssyni Sjónes störf í þágu landssambandsins. Fundi slitið kl. 12.45 Guðmundur Kristinsson, fundarritari. |