Stjórn SjóSnæ býður ykkur velkomin á opna SjóSnæ sjóstangaveiðimótið helgina 16.-17. maí 2025.
Þetta er annað landsmót sumarsins sem telur til Íslandsmeistara SJÓL 2025.
Lokaskráning í síðasta lagi föstudaginn 9. maí fyrir kl. 20:00.
Kl. 20:00 Mótssetning í Björgunarsveitarhúsinu Von á Rifi.
Veitingar í boði SjóSnæ.
Bryggjuveiði verður útskýrð nánar á mótssetningunni.
Kl. 05:00 Mæting á smábátabryggju Ólafsvík
Kl. 06:00 Bryggjuveiði
Kl. 06:15 Haldið til hafs frá Ólafsvík
Veitt í 6 klst. frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar.
Kl. 14:30 Kaffi í íþróttahúsinu, Engihlíð 1 þegar komið er í land.
Úrslit dagsins birtast á sjol.is og með nesti á laugardeginum.
Kl. 05:30 Mæting á smábátabryggju Ólafsvík.
Kl. 06:00 Bryggjuveiði.
Kl. 06:15 Haldið til hafs frá Ólafsvík.
Veitt í 6 klst. frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar.
Lokahóf í Björgunarsveitarhúsinu Von á Rifi. Húsið opnar kl. 19:30 og dagskrá hefst Kl. 20:00.
Keppnisgjald kr. 15.000 -. Stakur miði á lokahófið kr. 5.000 -.
Hægt er að greiða inná bankareikning 0190-26-007525 kt. 700597-2889.
ATHUGIÐ AÐ ENGINN POSI ER TIL AÐ TAKA VIÐ GREIÐSLU
Innifalið fyrir keppendur í mótsgjaldi: Mótsgögn – Nesti fyrir báða keppnisdaga – Kaffi og léttar veitingar í íþróttahúsinu á föstudag eftir veiði. – Miðar í sund báða dagana – Aðgangur fyrir lokahóf SjóSnæ.
Félagar í SJÓL tilkynni þátttöku sína til síns formanns í síðasta lagi kl. 20:00 föstudaginn 9. maí.
Formenn tilkynna svo þátttöku félaga sinna til Sigurjóns Helga í síma: 844-0330 eða netfang: sigurjon.hjelm@gmail.com